Það er ekkert leyndarmál að Þjóðverjar hafa flykkst til Mallorca á Spáni eins og mý á mykjuskán síðustu áratugina og þar gert sig breiða með kaupum á heilu íbúðahverfunum. En ekki lengur.

Þeim fer fækkandi sem telja Mallorca táknmynd elliáranna og setjast þar að. Mynd Minktiki

Þeim fer fækkandi sem telja Mallorca táknmynd elliáranna og setjast þar að. Mynd Minktiki

Fréttaveitan Deutsche Welle greinir frá þeim merkilega hlut að Þjóðverjum sé að fækka töluvert á Mallorca. Þar eiga þeir við þá Þjóðverja sem hafa þar keypt sér íbúð eða villu og kallað heimili. Þeim hefur fækkað síðustu tvö árin um rúmlega tvö þúsund alls.

Tvö þúsund einstaklingar er stór hópur fólks. Á pari við alla íbúa á Höfn í Hornafirði ef út í það er farið. Samt aðeins lítill hluti þeirra 45 þúsund Þjóðverja sem eiga eignir á eyjunni og dvelja þar lungann úr árinu. Þjóðverjar hafa lengi verið þeir útlendingar sem mest strik setja á hina spænsku Mallorca þó fólk frá Marokkó, 26 þúsund, og Bretar, 24 þúsund, séu ekki langt á eftir í fjölda og áberandi á eyjunni líka. Alls eru 16% allra íbúa Mallorca af öðru þjóðerni en spænskir.

Ástæður fólksflóttans segir DW vera tvær helstar. Annars vegar minnkandi kaupmáttur á Spáni. Það er ekki jafn auðvelt að lifa af litlu á Spáni í dag og þegar Þjóðverjar keyptu þar sem mest af eignum kringum aldamótin. Ellilífeyrir frá Þýskalandi dugar ekki lengur fyrir miklu meiru en nauðsynjum og það er ekkert gaman.

Hitt varðar heilsugæslu og læknisaðstoð. Eldra fólk þarf meira á læknisþjónustu að halda en aðrir og nú eru Þjóðverjarnir að komast að raun um að á Spáni er þjónustan ekki alveg á pari við það sem gerist í heimalandinu. Það er sem sagt minna spennandi að eldast með sól í andlit á Mallorca þegar fólk fer að kveinka sér vegna elli. Þá er betur tekið móti manni í heimalandinu og þjónusta öll betri.