Það verður að teljast æði merkilegt að lúxusvilla með átta þúsund aðdáendur, sem er klárt heimsmet, samkvæmt fésbókinni skuli enn ekki vera uppbókuð þetta sumarið þrátt fyrir margra mánaða auglýsingar.
Það á við um lúxusvillu Spánarferða, sem er fyrirtæki sem sér ekki um neinar Spánarferðir heldur leigir út dýra villu nálægt Torrevieja í Alicante á Spáni. Samkvæmt tilkynningu frá Spánarferðum frá síðustu mánaðarmótum eru enn tvær vikur lausar í útleigu á húsinu atarna yfir sumartímann.
Svo virðist sem Íslendingar vilja allra helst eiga viðskipti við aðra Íslendinga þó reynslan af slíku sé nú varla ýkja góð í sögulegu samhengi. Það er jú næstum þjóðaríþrótt að svindla og græða sem allra mest á hvor öðru.
Fararheill hefur bent á og fjallað um að þessi ákveðna lúxusvilla Spánarferða er í dýrari kantinum á þessu vinsæla svæði og þó hvergi nærri sjó. Vissulega spennandi að vera með golfvöll í nágrenninu en súrt líka að þurfa að leigja bíl og keyra til að leyfa börnunum að busla á ströndinni.
En það eru aðrir íslenskir aðilar að bjóða hús og íbúðir til leigu á sama eða svipuðu svæði og ráð fyrir þá sem enn hafa ekki gert upp hug sinn að skoða það. Á Spáni er einn aðilinn, Spánn.is er annar, Sumarhús á Spáni sá þriðji og Spánargisting sá fjórði.
Gott er að hafa í huga að nú þegar liðið er aðeins fram á sumarið fer fljótt að fara um sumarhúsaeigendur sem treysta á innkomu af húsum sínum. Sé fólk sveigjanlegt með ferðatíma og geti hoppað af stað með litlum fyrirvara er tilvalið að senda eigendum eða fyrirtækjum sem leigja út eignir póst og gera tilboð í dauðan tíma. Prútthæfileikar koma sér vel hér því viðskiptavinurinn hefur úr nógu að velja en sumarhúsaeigandinn ekki.
Fararheill hefur góða reynslu af slíku. Villa ein í Portimão í Portúgal með öllum þægindum átti um vorið að kosta 26 þúsund krónur á dag sumarið 2011 en eigandinn tók tilboði um 19 þúsund krónur á dag þegar júnúmánuður var hálfnaður og töluvert var laust ennþá.








