Þeir eru margir sem hatast við Fararheill og gera lítið úr en eitt verður aldrei tekið af ritstjórn að við rokkum og rólum jafnvel líka þegar kemur að blaðamennsku, jafnvel þó við séum eyjaskeggjar frá Fróni.

Dæmi um það er fregn sem birtist í dag, 8. júní, á vef hins virta National Geographic sem oft er nú framar öðrum þegar kemur á véfregnum um náttúruna eða dýralíf á heimsvísu. Þar er NG að segja frá því að hið mikla Kóralrif við strendur Ástralíu, Great Barrier Reef, hafi látið svo á sjá að hjá Heimsminjaskrá íhuga menn að taka rifið glæsilega út af sakramentinu. Hreint ömurlegar fregnir af þessu einna merkilegasta náttúrufyrirbrigði á þessari kringlu okkar.

En líka fregn sem Fararheill birti þann 21. maí síðastliðinn og vakti enga athygli. Hins vegar hafa innlendir miðlar fjallað um frétt NG nú þegar.