Áströlsk stjórnvöld hafa aðeins tólf mánuði til að sýna að alvara búi að baki því að standa vörð um Kóralrifið mikla undan austurströnd landsins ella verður þetta einstaka náttúruundur tekið af opinberum lista Heimsminjaskrár Sameinuðu þjóðanna og sett í hættuflokk í staðinn.
Alvarlegri verða skilaboðin ekki frá Heimsminjaskrá en sérstök eftirlitsnefnd telur allt of lítið að gert af hálfu ástralskra stjórnvalda til að sporna gegn niðurbroti á þessari einstöku náttúruperlu sem er heimili fjórðungs allra dýrategunda sem í sjónum lifa. Kóralrifið var fyrsta náttúruundur heims til að komast á Heimsminjaskrá á sínum tíma árið 1981.
Ýmislegt ógnar þessu 2300 kílómetra langa kóralrifi að því er fram kemur í skýrslu eftirlitsnefndarinnar sem telur ástandið „grafalvarlegt.“ Hlýnun sjávar er talin valda miklu tjóni á kóralnum sem þegar er illa farinn á stórum svæðum. Óheft skipaumferð er um þessar slóðir og aðeins rétt ár síðan siglingar stærri skipa voru bannaðar með lögum. Enn er eftirlit þó lítið. Síðast en ekki síst er stóraukin námuvinnsla í Ástralíu en töluvert af úrgangi frá námuvinnslunni er hellt beint út í sjó og víða nálægt rifinu mikla.
Skýrsluhöfundar skafa ekki ofan af því hver framtíð kóralrifsins er ef fram heldur sem horfir: það deyr.







