Slysafaraldur virðist upp í loftbelgjaferðamennsku en í gærkvöldi fórust tveir ferðamenn og tugir slösuðust þegar tveir belgir fullir af ferðafólki rákust saman. Annað slys tengt lofbelgjum átti sér stað í byrjun ársins í Egyptalandi sem dró nítján til dauða.

Sjónarvottar segja tvo loftbelgi hafa rekist á hátt yfir hinu vinsæla héraði Cappadocia í Tyrklandi með þeim afleiðingum að belgur annars þeirra rifnaði og sá féll til jarðar.