M eð vaxandi heimsvæðingu verður smátt og smátt hver einasti bær, hverfi, hérað, borgir og heilu löndin meira og meira eins. Ferðamenn fá sömu þjónustu, sama mat, sams konar uppákomur og svo framvegis sem á endanum mun þýða að ferðalög missa töluvert marks fyrir næstu kynslóðir þar sem allt er eins alls staðar.

Enn búum við þó nógu vel til að vita og finna að þjóðir heims eru frábrugðnar í mörgu tilliti og þar á meðal þegar kemur að boðum og bönnum. Ráðgjafafyrirtækið GlobalVisas hefur tekið saman til gamans nokkur lög í nokkrum löndum sem koma ættu flestu aðkomufólki spánskt fyrir sjónir.

  • Það stríðir gegn lögum að stoppa bifreið á hraðbrautum Þýskalands og skiptir í raun engu í augum laganna hvort bensínleysi, bilun eða öðru er um að kenna. Háar sektir eru við slíku.
  • Það er líka feit sekt við því að gefa dúfunum á Markúsartorginu í Feneyjum gott í gogginn enda hvítar byggingar miðborgarinnar orðnar brúnleitar sökum fjöldans. Sekt getur numið allt að 90 þúsund krónum.
  • Á tilteknum stöðum á Spáni liggur sekt og eða fangelsisdómur við að aka bifreið í sandölum.
  • Prófaðu að hrækja á stéttina í Barcelóna fyrir framan lögreglumann en við því er góð 20 þúsund króna sekt handa viðkomandi.
  • Háir hælar eru illa séðir í fornum byggingum í Grikklandi. Slíkir hælar eru sagðir eyðileggja fornar götur, göngustíga og mannvirki og gjarnan sektað fyrir. Fyrir utan það augljósa að erfitt er að labba nokkuð um slíka staði á háum hælum.
  • Tyggjó er tæknilega séð bannað í Singapore. Það var eina leiðin hjá yfirvöldum til að koma í veg fyrir að tyggjóklessur skreyti stéttir og stræti en við slíku er 20 þúsund króna sekt.
  • Í Sádí-Arabíu og Sameinuðu arabísku furstadæmunum er gert ráð fyrir að ótrúaðir neyti ekki matar yfir Ramadan. Í báðum löndum hafa erlendir ferðamenn verið fangelsaðir fyrir að háma í sig þegar heimamenn fasta sem fætur toga.
  • Engum sögum fer af því hvernig þeim lögum er framfylgt en í Portúgal stríðir það gegn lögum að pissa í sjóinn. Lögin reyndar gömul og þreytt.