Ekki hafa allir Íslendingar gaman af sólarferðum sýknt og heilagt og góðu heilli eru reknar hér nokkrar ferðaskrifstofur sem gera sérstaklega út á þá sem þyrstir í eitthvað öðruvísi. Fararheill hefur smellt saman þeim þremur haustferðum sem heillar okkur allra mest og vonum að heilli fleiri enda þær allar í boði á sanngjörnu verði.

  1. Sigling eftir Volgu / Ferðaskrifstofan Bjarmaland Rússland er ekki allra og Fararheill hefur afar misjafna reynslu af ferðum í því mikla landi. En varla er hægt að kynnast henni betur eða auðveldar en í töluverðum lúxus um borð í skemmtiferðaskipi sem siglir sem leið liggur frá Kaspíahafi eftir hinni miklu Volgu alla leið til Moskvu. Á leiðinni er lagst að bryggju við hvorki fleiri né færri en tíu borgir og þær skoðaðar á tiltölulega rúmum tíma þar sem enginn þarf að flýta sér. Skipið sem um ræðir ekki á pari við súperskipin sem flakka um Karíbahaf en gott til brúksins og fólk getur slakað á um borð ef því sýnist svo. Allur matur innifalinn og skemmtiatriði um borð og auðvitað feitur bar líka enda enginn Rússi með Rússum nema stúta vodka eins oft og þurfa þykir. Þá er ferðast um á afar góðum tíma þegar hitar gera mönnum ekki lífið leitt um. Verð á þessari heillandi ferð er 528 þúsund krónur á mann miðað við tvo. Allt um hana hér.
  2. Fegurð Albaníu / Ferðaskrifstofan Söguferðir Ok, við viðurkennum fúslega að Albanía er kannski ekki mest sexí áfangastaður heims en með tilliti til að þetta hefur nánast allar götur verið eitt allra lokaðasta land Evrópu og það á brilljant stað við Adríahaf slær landið tvær flugur í einu höggi. Í fyrsta lagi er Albanía enn langt á eftir og það er sannarlega upplifun að finna slíkt og sjá. Hér ferðast fólk enn um á hestvögnum á stórum svæðum og þá má meira að segja sjá á ferðinni í höfuðborginni Tirana. Á hinn bóginn er Albanía á sérdeilis frábærum stað umkringt Grikklandi og Króatíu og hinum megin hafs er Ítalía. Hvernig dettur mönnum í hug að hér séu ekki stórkostlegar strendur og ljúflegheit. Verðið er 232 þúsund krónur. Nánar hér.
  3. Þriggja landa sýn / Ferðaskrifstofan Trans-Atlantic Það þarf ekki lengi að ræða hve frábært er að íslensk ferðaskrifstofa sé að bjóða vandaða og mjög fjölbreytta ferð um þrjú lönd í Norður- og Mið-Ameríku og það á ótrúlega fínu verði. Löndin ekki af lakara taginu heldur. Mexíkó, Belize og Guatemala. Þarna fá allir fyrir sinn snúð og gott betur. Eðalfínar strendur Mexíkó og stórkostlegar og einstakar menningarminjar Belize og Guatemala. Fólk almennt í öllum löndunum opið og glatt og ekki þarf að ræða veðrið mikið. Verðlag afar hagstætt jafnvel fyrir krónueigendur og í þokkabót er líka hægt að versla eins og enginn sé morgundagurinn í New York á heimleiðinni. Hellingur innifalið og verðið nánast hlægilegt eða 464 þúsund á mann miðað við tvo. Allt um málið hér.