Svo sem Fararheill hefur áður fjallað um eru Íslendingar heilt yfir afskaplega lítið meðvitaðir um rétt sinn gagnvart fyrirtækjum. Margir gera sér enn þann dag í dag til dæmis ekki grein fyrir að veruleg töf á flugi eða vesen í skipulagðri ferð geta skapað skaðabótarétt.
Hér á landi hefur verið í fá hús að venda ef níðst er á fólki. Helst er það í fluggeiranum sem hægt er að bera mál sín á borð með auðveldum hætti með því að senda Flugmálastjórn erindi varðandi flugferðir.
En nú er mun einfaldara og fljótlegra að sækja rétt sinn eða í öllu falli ganga úr skugga um að fólk eigi rétt með því að skrá sig og kvarta til þýska fyrirtækisins Refund.
Fyrirtækið sérhæfir sig í að kanna rétt einstaklinga á ferðalögum og þá hversu miklar bætur fólk má eiga von á miðað við evrópsk neytendalög og þau eru afar sterk.
Refund er netfyrirtæki og nægir að skrá sig, gefa upp erindi og senda flugfarseðla eða önnur gögn og starfsmenn Refund ganga í málið og innan skamms tíma færðu að vita allt sem þú þarft. Fyrirtækið tekur aðeins lítið gjald fyrir og þá aðeins ef kvörtun leiðir til skaðabótagreiðslna. Ella er þjónustan frí og viðkomandi þarf ekki að eyða tíma sínum í leiðindi.
Hafa ber í huga að lágmarks skaðabótaupphæð í Evrópu þyki sýnt að tafir fari fram úr hófi eða annað komi upp á í ferðum er milli 500 og 600 evrur og skiptir öll almenn heimili máli.








