Það kann að hljóma afkáranlega en stundum verður okkur svo orða vant að við getum ekki orða bundist. Á fésbókarvef Úrval Útsýn hefur einhver markaðsfræðingurinn talið jákvætt að kynna áfangastaði fyrirtækisins betur en venjulega en gerir það af þvílíku ástríðu- og getuleysi að engu lagi er líkt.

Skoðum þessa steypu ÚÚ:

Borgin Alicante er staðsett í hjarta Costa Blanca héraðsins á Spáni og er hún er höfuðborg héraðsins. Borgin sem iðar af mannlífi er gullfalleg gömul spænsk borg með heillandi miðbæ. Þar ríkir mikil matar- og vínmenning sem endurspeglast vel í þeim fjölda framúrskarandi veitingastaða sem eru á svæðinu. Í bænum er einnig að finna fjölda áhugaverða safna, sögulegar minjar, skemmtilega markaði að hætti innfæddra og heimsþekktar verslanir. Næturlífið á Alicante er alþekkt og geta skemmtanaþyrstir ferðalangar valið á milli aragrúa af börum, skemmtunum og diskótekum. Ekki spillir fyrir að við borgina er frábær 7 km löng strönd og eru hótelin okkar staðsett nálægt ströndinni. Ferð til Alicante borgar sameinar því sólar og borgarferð sem inniheldur strandlíf og slökun ásamt því að njóta alls þess er borgin hefur uppá að bjóða.

  • hún er höfuðborg héraðsins. Borgin sem iðar af mannlífi er gullfalleg gömul spænsk borg með heillandi miðbæ >> Einmitt það. Slíkt bull er hrein móðgun við raunverulega gullfallegar gamlar spænskar borgir á borð við Granada, Ronda, Sevilla, Segovia, Toledo eða  Cordóba. Fyrir utan að mannlífið samanstendur af erlendum ferðamönnum.
  • Þar ríkir mikil matar- og vínmenning sem endurspeglast vel í þeim fjölda framúrskarandi veitingastaða sem eru á svæðinu >> Auðvitað þekkja allir hin heimsfrægu Alicante vín en verra hvað illa gengur að finna þessa framúrskarandi veitingastaði alla. Ekkert finnst í Michelin handbókinni og heldur er Zagar veitingahúsavefurinn ekki með þessa sælkeraborg einu sinni á lista. Þá er topp veitingastaðurinn í borginni samkvæmt Tripadvisor lítill cerviceria sem sver sig í ætt við Múlakaffi og veitingahúsið á BSÍ.
  • er einnig að finna fjölda áhugaverða safna >> Það var og. Við teljum fjögur söfn í borginni og ekkert þeirra ýkja merkilegt.

og svo framvegis og svo framvegis.

Hvernig væri að segja fólki bara að Alicante sé tiltölulega tómlegur túristabær og hér fátt að sjá og gera nema sleikja sól, drekka bjór og spila golf? Fyrir þá sem eru fyrir slíkt er þetta toppstaður. Það heitir að segja sannleikann 😉

Sjá vegvísi Fararheill um Alicante.