Fyrir nokkrum dögum bentum við ykkur á hreint ágætt tilboð til Kanarí í desember þar sem par gat notið vikudvalar með öllu undir tvö hundruð þúsund krónum. Við vorum að finna annað svoleiðis tilboð nema ennþá betra.
Að þessu sinni er það ekki Playa del Ingles á Kanarí sem er í boði á úrvalsverði heldur Jaquita ströndin við Medano á suðurströnd Tenerife. Þar stendur fimm stjörnu hótelið Arenas del Mar og þangað hægt að fara og gista með öllu inniföldu í desember frá London fyrir litlar 73 þúsund krónur á mann miðað við tvo saman.
Dagsetningar þeirrar ferðar stemma nokkuð við flug Wow Air til London og þar finnst flug fram og aftur án farangurs fyrir 24 þúsund krónur á mann eða 48 þúsund samtals. Heildarpakkinn þá kominn í 194 þúsund krónur á parið.
Inn í þetta vantar reyndar gistingu í London eina nótt fyrir ferð og eina nótt eftir ferðina til Tenerife. En þar sem fyrirvarinn er ágætur og London ekki leiðinleg yfir aðventuna er ekki fráleitt að taka aukadag eða daga þar og versla fyrir jólin.
Sáraeinfalt að finna allra bestu verð á gistingu í London á hótelvef Fararheill og njóta samvista við fólkið sitt á Aðfangadag sólbrún, sælleg og sæl í hjarta.








