Einhvern tímann séð útsölu á allt-innifalið pakkaferðum hér heima? Neibb, til að finna slíkt verður að leita út fyrir landsteina og þar finnst strax fyrirtaks fimm stjörnu dvöl í Analya í Antalya í Tyrklandi með öllu í nóvember niður í 39 þúsund krónur íslenskar.

Bærinn Analya er um það bil þremur tímum frá Antalya sem margir Íslendingar þekkja. Mynd Özgur Mulizimoglu
Það verður bara að segjast eins og er að þetta er með því allra, allra besta sem liðsmenn Fararheill hafa rekist á. Fimm stjörnu hótel á fínasta stað með mat, drykk, nuddi og ávaxtakörfu með í vikutíma á sama verði og það kostar að fljúga fram og aftur milli Reykjavíkur og Egilsstaða með Flugfélagi Íslands. Og þó Egilsstaðir séu hreint ágætir er þetta engin samkeppni. Fyrir utan að fyrir austan er kalt í nóvember en í Analya eru menn enn á stuttermabolum á spókinu.
Auðvitað þurfum við að gera okkur ferð til London til að komast í pakkann og helst heim aftur fyrir flest okkar. Á vef Wow Air finnast fargjöld þennan nóvembermánuð niður í 25 þúsund krónur fram og aftur lægst. Þar engin farangur innifalinn og það reyndar heldur ekki í Tyrklandsferðinni en ein taska til og frá breytir engu um þetta frábæra tilboð. Það er enn frábært.
Í öllu falli bregðist áhugasamir skjótt við er ferðin ykkar fyrir svo mikið sem 65 þúsund krónur á mann eða 130 á par eða svo plús þá farangur þurfi fólk þess með. Og liðsmenn Fararheill skulu öll hundur heita ef það verður ekki ódýrasta fimm stjörnu allt-innifalið dvöl erlendis sem fólk mun nokkurn tímann fara í.
Allt um málið hér en sem fyrr hjá þessari ferðaskrifstofu þarf að hringja út til að bóka.







