Við hefðum kannski betur sleppt því að hrópa ferfalt húrra fyrir frábærum og jákvæðum breytingum hjá Wow Air. Ekki var húrrahrópinu sleppt fyrr en þjónustan versnaði til muna á ný.

Aftur í gamla farið. Hin gamla lamaða flugleitarvél Wow Air aftur í boði hjá flugfélaginu. skjáskot

Aftur í gamla farið. Hin gamla lamaða flugleitarvél Wow Air aftur í boði hjá flugfélaginu. skjáskot

Eins og lesendur okkar vita greindum við frá því í gær að ný flugleit Wow Air hefði litið dagsins ljós. Flugleit sem væri hundraðfalt betri kostur fyrir viðskiptavini en gamla leitin eins og lesa má um hér.

Helst datt okkur í hug að eitthvað hefði komið upp á við prófanir á nýja kerfinu en blaðafulltrúi fyrirtækisins þegir þunnu hljóði.

Við verðum sem sagt aftur að eyða miklum tíma til að finna allra hentugustu flugfargjöld hjá Wow Air.