Kannski ætti ritstjórn Fararheill að senda Wow Air einn feitan reikning fljótlega. Flugfélagið er smátt og smátt að fara að öllum okkar ráðleggingum.

Loks almennileg þjónusta. Húrra fyrir Wow Air. skjáskot

Loks almennileg þjónusta. Húrra fyrir Wow Air. skjáskot

Flugfélagið hefur loks snarbreytt og snarbætt flug- og bókunarvél sína á þann hátt að nú finnast fleiri en ein eða tvær dagsetningar við hverja leit og gott betur því nú má sjá á augabragði verð á dagsetningnum mánuði fram í tímann.

Þetta er á pari við það sem gerist hjá öllum almennilegum fyrirtækjum sem bera virðingu fyrir viðskiptavinum sínum og verðskuldar stórt klapp í lófa.

Nú þurfa áhugasamir ekki lengur að fletta átta þúsund síðum til að finna lægsta fargjald eða hentugasta fargjald. Það sést á einni síðu.

Lof í hatt Wow Air frá Fararheill.