Flug og hótel í Orlando í vikutíma fyrir 96 þúsund krónur eða flug fram og aftur til Múmbai á Indlandi í almenningsklassa fyrir 45 þúsund krónur hvora leið.

Fjarlægar slóðir fyrir minna með risaflugfélaginu British Airways. Mynd briYYZ

Fjarlægar slóðir fyrir minna með risaflugfélaginu British Airways. Mynd briYYZ

Fátt sérstaklega neikvætt við slík tilboð sem einmitt eru til sölu nú hjá breska flugfélaginu British Airways sem er nú að selja tilteknar ferðir sínar á útsöluprís fram til 23. september.

Ekki aðeins er flugfélagið að losa sig við flugferðir á lægra verði en gengur og gerist heldur býður líka ágæta afslætti á pakkaferðum ýmis konar og reyndar aukalegur 22 þúsund króna afsláttur á þeim ferðum næstu sex dagana samkvæmt vef flugfélagsins.

Sérdeilis fín leið til að eyða peningum í sparnað og hér er ágætt að muna að enn fást flugsæti til Englands héðan á kringum tíu þúsund krónur eða svo án farangurs. Allt hægt gott fólk.

Útsölusíða BA hér.