Íslendingar almennt geta seint stært sig af því að vera framsýnt fólk. Það sýnir og sannar sagan sem kannski útskýrir hvers vegna allt er hér í kaldakoli á fimm mínútna fresti eða svo.

Engin þörf að bíða með sumarferð næsta árs. Tilboð þegar komin á netið.

Engin þörf að bíða með sumarferð næsta árs. Tilboð þegar komin á netið.

En séu einhverjir þarna úti búnir að læra lexíuna eða vita betur gætu hinir sömu gert vitlausari hluti en fjárfesta í vorferð með easyJet.

Breska flugfélagið er ekkert að hangsa með tilboðsferðir sínar heldur er þegar farið að auglýsa vorferðir sínar 2015. Það kannski segir sitt að innlendar ferðaskrifstofur svo ekki sé talað um flugfélögin eru enn að bisast við að koma út vetraráætlun.

Því er óvitlaust að kíkja á vef easyJet og kynna sér verð á flugi um alla Evrópu og víðar reyndar næsta vor og negla jafnvel pöntun eigi síðar en strax. Það er nefninlega svo þar eins og annars staðar hjá flugfélögum að flugfarið hækkar jafnt og þétt upp frá þessu.

Dæmi um það sem er í boði þegar þetta er skrifað:

London – Dubrovnik 6.230 krónur*

London – Madríd 5.620 krónur*

London – Feneyjar 5.570 krónur*

London – Keflavík 7.750 krónur*

* önnur leið m. sköttum og gjöldum