Ferðaskrifstofan Úrval Útsýn auglýsir þessa dagana sérstakan bókunarafslátt á tilteknum pakkaferðum sínum fram eftir vetri. Þannig fæst afsláttur á ferðum sé bókað sem allra fyrst. Gallinn sá að afar erfitt er fyrir áhugasama að gera sér grein fyrir hvort afslátturinn er raunverulegur eða hve mikill.

Enn skortur á fagmennsku hjá einni stærstu ferðaskrifstofu landsins.

Enn skortur á fagmennsku hjá einni stærstu ferðaskrifstofu landsins.

Framtakið ágætt að bjóða aukalega afslætti kjósi fólk að skilja við fjármuni sína með löngum fyrirvara áður en gulrótin er étin. Það er minnst einn stór plús við slík kaup að frátöldum hugsanlegum afsláttum og hann er sá að sé ferð greidd upp í topp getur ferðaskrifstofan ekki hækkað verðið eftir á sökum verð- eða gengisbreytinga eins og allar ferðaskrifstofur hérlendis áskilja sér.

Eins er sannarlega ágætt mál eigi fólk peninga sem ekki þarf að brúka á næstunni að tryggja sér feitan afslátt með þessum hætti. Það munar sannarlega um allt að sextán þúsund króna afslátt á hvern mann í fjögurra manna fjölskyldu svo dæmi sé tekið.

Það sem Fararheill gerir athugasemdir við er að það þarf að hafa fyrir því að kanna hvort raunverulega er verið að gefa þér uppsettan afslátt og hvergi á vef né í auglýsingum Úrval Útsýn kemur í fljótu bragði fram hvort umræddur afsláttur gildi um ferðina í heild eða hvort um afslátt á hvern mann er að ræða.

Það er sem sagt verið að brjóta lög:

[11. gr. Útsölu eða aðra sölu, þar sem selt er á lækkuðu verði, má því aðeins auglýsa eða tilkynna að um raunverulega verðlækkun sé að ræða. Þess skal gætt að greinilegt sé með verðmerkingum hvert hið upprunalega verð vörunnar var.]1)

Upprunalegt verð kemur hvergi fram á tilboðssíðu Úrval Útsýn. Aðeins hver afsláttur af hverri ferð fyrir sig er og hvenær sú ferð er í boði. Sem merkir að fyrirtækið gæti mjög auðveldlega verið að ljúga að okkur. Annað eins hefur nú gerst.

Málið vandast þó enn meira ætli fólk að eyða tíma sínum að ganga úr skugga um hlutina. Fararheill tók stikkprufu á ferð til Tenerife sem auglýst er á tilboði með 16.970 króna afslætti eins og greinir að neðan:

uutilbo

Eina leiðin til að kanna hvort afslátturinn er réttur er að finna vikuferð á svipuðum tíma á sama hóteli en ekki á uppgefnum „tilboðsdagsetningum.“ Við kíkjum því á viku á Marylanza þann 18. mars til 25. mars. Þá kostar herbergið miðað við tvo fullorðna og tvö börn yngri en tólf ára þetta:

mary

Nú gerist málið enn furðulegra. Samkvæmt þessu er afslátturinn á mann alls 22.200 krónur en ekki 16.970! Hver hefur heyrt um íslenskt fyrirtæki sem auglýsir mun minni afslátt en í boði er í raun?

Sá hugsanlegi viðskiptavinur sem slíkt kannar með þessum hætti gæti hugsað sem svo að hér hafi Úrval Útsýn gert mistök og séð færi á að spara meira en ella. Aðrir myndu kannski hringja í ferðaskrifstofuna og afla skýringa. Í öllu falli er viðskiptavinurinn farinn að eyða miklum tíma og peningum líka að ganga úr skugga um hlutina. Það er ófaglegt í meira lagi fyrir utan að vera lögbrot.