Tíðindi

Fararheill.is jafnar og býður betur en Úrval Útsýn

  27/01/2013desember 25th, 2013No Comments

Ferðaskrifstofan Úrval Útsýn auglýsir stíft í fjölmiðlum þessa helgina sérstök tilboð sem ferðaskrifstofan hyggst bjóða á morgun mánudag í einn sólarhring. Þar gefst áhugasömum tækifæri til að kaupa sumarferðina með nokkrum afslætti frá hefðbundnu verði. En það er í raun engin ástæða til að bíða morgundagsins því Fararheill finnur sömu ferðir og Úrval Útsýn býður og það á lægra verði en ferðaskrifstofan.

Við tókum okkur til og könnuðum tvö af alls fimm tilboðum sem ferðaskrifstofan setur í gang á hádegi á morgun og býður þar ríflegan afslátt frá hefðbundnu verði á völdum dagsetningum eins og það er auglýst.

Gallinn sá, fyrir Úrval Útsýn, að hálftíma leit eða svo skilar í einu tilfellinu betra verði hjá Fararheill en besta tilboðsverð Úrval Útsýn og í öðru tilfellinu erum við líka að bjóða betur en verðið er þó aðeins hærra.

Þetta þarfnast útskýringar svo förum nánar í málið:

Tilboð 1

Vikudvöl fyrir tvo fullorðna og tvö börn á þriggja stjörnu Albahia hótelinu í Alicante. Verð á tilboði hjá ÚÚ hljóðar upp á 82.500 krónur á mann. Samtals fyrir fjóra 330.000 krónur.Sami pakki á hefðbundnu verði þessa sömu viku kostar sömu fjóru einstaklinga 91.375 krónu á mann eða samtals 365.500 krónur. Sparnaðurinn nemur 35.500 krónum alls.

Ritstjórn Fararheill finnur flugmiða fyrir fjóra, tvo fullorðna og tvö börn, með Wow Air 1. til 8. júní fyrir 223.930 krónur. Bætum við það tveimur 23 kílóa töskum báðar leiðir eða 11.600 krónur. Þá er upphæðin komin í 235.530 krónur. Þá leitar Fararheill á hótelvef sínum að Albahia í Alicante 1. til 8. júní og fær gistingu þar fyrir tvo fullorðna og tvö börn á 61.208 krónur. Samtalan fyrir þetta er því 296.738 krónur fyrir fjölskylduna. Það er 33.263 krónum ódýrara en besta sólarhringstilboð Úrval Útsýn á morgun og 68.762 krónum ódýrara en hefðbundið verð ferðaskrifstofunnar.

Flug með Wow Air til og frá Alicante á ofangreindu verði

Og sama hótel á sama tíma…

Tilboð 2

Vikudvöl fyrir tvo fullorðna og tvö börn í Lloret de Mar við Costa Brava í Katalóníu frá 7. til 14. júní á Guitart hótelinu fæst á sólarhringstilboði Úrval Útsýn á 93.900 krónur á mann eða samtals 375.600 krónur fyrir alla saman. Sami pakki á hefðbundnu verði ferðaskrifstofunnar kostar fyrir manninn 104.551 krónu eða samtals fyrir fjóra 418.203 krónur. Samtals sparnaður er því 42.603 krónur.

Ritstjórn Fararheill finnur flug til og frá Barcelóna þessar sömu dagsetningar fyrir tvo fullorðna og tvö börn á samtals 218.160 krónur. Bætum við tveimur ferðatöskum að upphæð 11.600 krónur og þá erum við í 229.760 krónum. Svo leitum við á hótelbókunarvef Fararheill að Guitart fyrir tvo fullorðna og tvö börn og finnum gistingu með öllu inniföldu (morgun-, hádegis-, kvöldmat plús drykki á 162.477. Samtals er því kostnaðurinn orðinn alls 392.237 krónur. Það er vissulega 16.637 krónum dýrara en sólarhringstilboð Úrval Útsýn en á móti kemur að fyrir þann pening er allt innifalið en ekki aðeins hálft fæði. Við viljum meina að allt innifalið í viku sé merkilegra tilboð en hálft fæði. Fararheill er hins vegar 25.966 krónum ódýrari en hefðbundið verð ÚÚ. Til að gæta allrar sanngirni þá er rútuferð milli staða innifalin hjá Úrval Útsýn en til Lloret de Mar er rúm klukkustundar ferðalag frá Barcelóna. Sá kostnaður bætist við.

Flug fram og aftur til Barcelóna umrædda daga

 

Og sama hótel og takið eftir „all inclusive“ sem þýðir allt innifalið

Hin tilboð Úrval Útsýn er erfiðara að eiga við sökum þess að ferðaskrifstofan er með leiguflugvélar til Tenerife og Almería. En í öllu falli er ekki mikil þörf að bíða morgundagsins í þessum tveimur tilfellum.

* Verð rétt og hótel og flugsæti laus kl. 23.30 þann 27. janúar 2013. Hafa skal í huga að verðbreytingar bæði hjá flugfélögum og hótelum eru örar.