Komi til þess að Boeing flugvélaframleiðandinn þurfi að skipta út lithíum rafgeymum í Dreamliner vélum sínum og færa sig yfir í hefðbunda rafgeyma gæti slíkt ferli tekið upp undir ár að mati verk- og tæknifræðinga. Það hefði í för með sér að engin slík vél færi í loftið fyrr en á næsta ári.
Rannsakendur eru enn engu nær um hvað veldur því að eldur hefur kviknað í eða við rafgeyma þá sem notaðir eru í nýjum Dreamliner 787 vélum Boeing sem olli því að allar slíkar vélar voru kyrrsettar í byrjun þessa mánaðar alls staðar í heiminum.
Fréttastofa CBS greinir frá því að nú séu rafgeymarnir ekki helsta rannsóknarefnið heldur sérkerfi það sem hefur eftirlit með sömu rafgeymum.
Vestanhafs segja miðlar ennfremur frá því að þolinmæði og trú manna í flugbransanum á vélar Boeing fari nú hratt minnkandi. Þriggja vikna stanslitlar athuganir tugþúsunda vélvirkja, hönnuða, rafmagnsfræðinga, eftirlitsmanna auk flugvirkja þeirra flugfélaga sem slíkar vélar eiga hafa litlu skilað.
Þá ber á vaxandi gagnrýni á flugmálayfirvöld í Bandaríkjunum fyrir að gefa Boeing leyfi án mikilla athugana til að nota þessa tegund rafgeyma sem sannað er að endast skemur og hitna meira en hefðbundir geymar. Á móti kemur þó að lithíum rafgeymar eru mun léttari en eldri tegundir og léttari þota var höfuðatriði við hönnun og byggingu 787 vélarinnar sem fyrir vikið nýtir eldsneyti mun betur en aðrar vélar.
Virðast flugmálayfirvöld hafa gefið Boeing upphaflega grænt ljós eingöngu vegna þess að Airbus notar lithíum rafgeyma í risaþotum sínum A380 vandræðalaust. Munurinn hins vegar sá að í Airbus vélunum er þeir geymar litlir 14 kílóa varaaflsgeymar en ekki 60 kílóa flykki sem meira og minna keyra allt rafkerfi allrar vélarinnar. Smá munur á því.






