Wow Air býður þessa stundina tilboðsverð til Amsterdam í Hollandi annars vegar og London í Englandi hins vegar í sumar. Tilboðsverð aðra leiðina til beggja borga er 14.900 krónur að sögn en er í raun 15.800 krónur með bókunargjaldi.
Amsterdam er í boði á þessu verði í júnímánuði og leit Fararheill leiðir í ljós að aðeins er um eina dagsetningu að ræða sem tilboðið nær til þegar þetta er skrifað. Það er 10. júní. Aðrar brottfarir eru dýrari. Samtals ódýrasti pakkinn til og frá með Wow í júní er því á 32.029 krónur. Aukalega greiðast 5.800 krónur fyrir eina tösku með í för báðar leiðir.
Nægt framboð er hins vegar til Gatwick í London með Wow á tilboðsverðinu 15.800 krónur. Sama fargjald er í boði á stöku dagsetningum til baka líka þannig að heildarkostnaður á mann báðar leiðir verður lægstur 30.700 krónur alls. Aukalega greiðast 5.800 krónur fyrir eina tösku með í för báðar leiðir.
Heimasíða Wow Air hér.
Úttekt gerð kl. 13 þriðjudaginn 29.janúar 2013.








