Mörgum okkar finnst ekkert varið í ferðalög erlendis nema vera undir stýri og fara þangað sem fólk vill fara þegar það vill fara. Þá er fátt annað í boði en leigja eitt stykki bílaleigubíl. Það getur hins vegar aldeilis margborgað sig að gera verðsamanburð í slíkum tilfellum eins og meðfylgjandi útttekt ber með sér.

Það er engin tímaeyðsla að gera ítarlegan verðsamanburð á bílaleigum hvort sem það er hjá flugfélögum eða bílaleigunum sjálfum.
Fararheill bar saman fjóra bíla sem teknir voru á leigu gegnum Wow Air annars vegar og Icelandair hins vegar. Fjórar tegundir bifreiða á fjórum mismunandi tímum í vor og sumar en allir þó teknir í vikutíma frá 9 að morgni til 9 um morguninn á Kaupmannahafnarflugvelli og skilað þar líka.
Í öllum tilfellum nema einu er um nákvæmlega eins bíla að ræða og sömu tryggingar, kílómetrafjöldi og annað innifalið hjá báðum aðilum. Eins er ökumaðurinn í báðum tilvikum 21 árs frá Íslandi. Í síðasta tilfellinu er þó um sambærilega lúxusbíla að ræða þó bílaáhugamenn geti eflaust deilt um slíkt út í hið óendanlega.
Úttekin leiðir í ljós að þótt lítill sem enginn munur sé þrisvar sinnum þá er töluverður munur í eitt skiptið á ódýrasta bílnum. Þar sparast yfir tíu þúsund krónur á vikuleigu á nákvæmlega sams konar bíl.
Klassi A vikuleiga 1.- 8. júlí 2013
Icelandair (Cartrawler) >> Toyota Aygo 24.000 krónur vikan.
Wow Air (Budget) >> Toyota Aygo 35.600 krónur vikan
Klassi B vikuleiga 1.- 8. júní 2013
Icelandair (Cartrawler) >> Ford Fiesta 36.000 krónur vikan.
Wow Air (Budget) >> Ford Fiesta 35.280 krónur vikan
Klassi I vikuleiga 1. – 8. ágúst 2013
Icelandair (Cartrawler) >> Ford Mondeo 58.000 krónur vikan
Wow Air (Budget) >> Ford Mondeo 56.000 krónur vikan
Klassi H 18. – 25. apríl 2013
Icelandair (Cartrawler) >> BMW Series 5 63.500 krónur vikan
Wow Air (Budget) >> Audi A6 69.200 krónur vikan
Strangt til tekið á ekki að koma á óvart að bílaleiguleitarvél Icelandair finnur hagstæðari verð því þar á bæ nota menn þjónustu sem leitar að besta verði hjá fjölda bílaleiga. Wow Air aftur á móti er með fastan samning við eina einustu bílaleigu.
Þar með er ekki sagt að bílaleit hjá Wow geti ekki líka fundið betri verð á köflum heldur aðeins verið að benda á nauðsyn þess að gera verðsamanburð og eyða til þess góðum tíma. Finnist verðmunur upp á rúmlega tíu þúsund krónur eins og Fararheill fann hér við þessar fjórar stikkprufur er þeim tíma ansi vel varið.
Enn betra er að gefa sér tíma samhliða og leita jafnframt beint hjá þeim aðilum sem starfa í viðkomandi landi eða reka útibú á viðkomandi flugvöllum. Hver veit hvaða tilboð eru í gangi þar sem ekki finnast gegnum leitarvélar Icelandair eða Wow Air.
Hafa skal líka í huga að bæði úrval og verð eru síbreytileg hjá flestum aðilum og það sem Fararheill finnur klukkan 15 í dag þarf ekki að finnast klukkan 16 sama dag. Gott ráð að ítreka leit sína en jafnframt grípa gæsina strax þegar áberandi gott verð finnst.






