Ritstjórn Fararheill hefur lengi verið þeirrar skoðunar að fákeppni ríki í flugi og ferðum hérlendis og reynt að miðla upplýsingum um hvernig best sé að komast hjá að eiga viðskipti á þeim markaði með umfjöllun um öll helstu tilboð, leiðir til að spara aurinn og hvernig auðveldast er að ferðast á eigin spýtur.
Nú hefur Margrét Gunnarsdóttir, sem rekur vefmiðilinn Ferðalangur.net, gefið út sérstaka handbók fyrir alla þá sem vilja en þora ekki að stíga skrefið án þess að vera með fararstjóra eða leiðsögumann innan seilingar.
Bókin, Vertu þín eigin ferðaskrifstofa, er fáanleg á vef Ferðalangs, en þar svarar Margrét öllum þeim spurningum sem fólk hefur um leiðir til að fara í ferðalög á sínum eigin forsendum.
Fjölmörg góð ráð er þar að finna og svör við spurningum á borð við hvernig best sé að lækka kostnað við flug, hvernig finna má ódýrasta flugið frá Íslandi og hvar og hvernig eigi að finna ódýrustu gististaðina, bílaleigubílana og allt það annað sem spurningar vakna um.








