Allra verstu hótel heims er að finna í höfuðborg London samkvæmt nýrri viðamikilli úttekt leitarvélarinnar Trivago. Ástæða óvinsældanna seinleg þjónusta, lélegur morgunverður og fáránlega hátt verð á mini-börum.

Bestu hótelin að mati viðskiptavina finnast í þýsku borginni Dresden í Þýskalandi en þau verstu eru í London og Kaupmannahöfn
Eru hótelin í London á botninum í samanburði við hótel í yfir hundrað öðrum borgum heims en úttektin náði aðeins til borga þar sem fleiri en 130 hótel eru til staðar og höfðu fengið fleiri en 60 umsagnir á hótelvefum öðrum en Tripadvisor. Hótel í Kaupmannahöfn þykja líka fyrir neðan allar hellur.
Bestu hótelin finnast hins vegar í borginni Dresden í Þýskalandi en þar þykir þjónustan framúrskarandi, verðlag afar gott og hótelherbergi almennt stór og rúmgóð.
Aðrar borgir þar sem viðskiptavinir sögðu þjónustu og aðbúnað fyrsta flokks voru meðal annars Hanoi í Víetnam, Tokíó í Japan, Chicago í Bandaríkjunum og Kraká í Póllandi.
Tíu verstu hótelin finnast hins vegar hér:
91. Los Angeles
92. Kiev
93. Frankfurt
94. Panamaborg
95. Brussel
96. Amsterdam
97. París
98. Kaupmannahöfn
99. Ríó de Janeiro
100. London







