Ferðaskrifstofan Sumarferðir hóf í hádeginu í dag sölu á svokölluðum Sólarhring þar sem í boði eru flug og gisting á ákveðnum áfangastöðum í sumar á tilboðsverði í 24 tíma eða meðan sæti eru laus. Athygli vekur að þetta er annar slíkur sólarhringur ferðaskrifstofunnar á skömmum tíma og sá fjórði á síðustu fimm mánuðum.

Sólarhringur Sumarferða hafinn í annað skipti á árinu

Sólarhringur Sumarferða hafinn í annað skipti á árinu

Nú eru að hluta sömu áfangastaðir og sömu hótel í boði og voru það í janúar þegar fyrsti sólarhringurinn var auglýstur. Roquetas de Mar í Almería og Tenerife í boði eins og þá en reyndar er Benídorm dottið út.

Í einu tilfelli hið minnsta er verð á ferð nú hærra en var í boði í janúar. Vikudvöl á íbúðahótelinu Parque de las Americas nú kostar 87.699 krónur á mann miðað við fjóra saman en kostaði í janúar 85.700 krónur miðað við sama fjölda.

Með tilliti til að Heimsferðir hafa líka reglulega á þessu ári boðið áfangastaði á Tenerife og Kanarí á tilboði vaknar spurningin hvort ferðaskrifstofurnar hafi ofmetið þann fjölda sem hefur áhuga eða efni á að sækja Kanaríeyjar heim ellegar hvort eyjurnar eru einfaldlega ekki jafn vinsælar og áður fyrr. Ekki eru mörg ár síðan velflestar ferðir til Kanaríeyja voru uppseldar upp í rjáfur strax í byrjun ársins.

Sólarhringur Sumarferða á tæknilega séð að gilda í sólarhring eins og nafnið ber með sér en ef það væri raunverulega raunin þyrfti ferðaskrifstofan vart að ítreka að „fyrstir koma, fyrstir fá.“ Það þýðir einfaldlega að tilboðssæti klárast þegar þau klárast.

Heimasíða Sumarferða hér.