Fararheill hefur fengið töluvert af fyrirspurnum um hið undarlega fyrirtæki Oska-Travel sem hefur auglýst Tyrklandsferðir á kostakjörum um nokkurra mánaða skeið. Nú eru fyrstu ferðir þessarar ferðaskrifstofu að baki og af þeim fer tveimur sögum.

Ferðir Oska-Travel eru mjög ódýrar og ekki voru allir spriklandi ánægðir sem fóru með ferðaskrifstofunni í febrúar
Stór hópur fór til Tyrklands með fyrirtækinu í nýliðnum febrúar og skiptist sá hópur, samkvæmt heimildum Fararheill, nokkuð í tvennt í afstöðu sinni. Engir urðu beint reiðir en nokkur fjöldi fólks var svekktur enda ferðin sú með öðru sniði en gengur og gerist.
Helsta umkvörtunarefni þeirra sem ekki komu fullsáttir heim var hversu stíf og ströng ferðin var og aldrei hægt að víkja neitt frá settri dagskrá eða breyta út af venjunni. Ferðin er stutt en engu að síður var gist á þremur mismunandi hótelum í ferðinni og þau misgóð eins og gengur og gerist.
Annað sem fór miður niður í hluta hópsins var að hópnum var líka dreift á hótel á sama staðnum og engir gátu verið saman á hóteli nema þeir tiltækju það sérstaklega fram við bókun. Þannig tvístruðust hópar fólks sem fór saman í ferðina og setti vitaskuld skugga á skemmtunina.
Þriðji mínusinn sem við hleruðum var að ferðin til Tyrklands var allt of stíf. Þeir sem kusu að fara í þær aukaferðir sem í boði var þurftu að rísa snemma úr rekkju og ferðirnar allar tóku mestallan daginn. Hvíld hjá þeim fór því fyrir ofan garð og neðan sem ekki er lítill galli því er ekki afslöppun atriði númer eitt, tvö og þrjú fyrir flesta.
Að þessu sögðu var heldur engin óánægja með flug eða rútur. Dagskráin gekk eftir að flestu leyti og margt athyglisvert að sjá og skoða og ekki má gleyma að verð á ferð Oska-Travel er verulega undir því sem Íslendingar eiga að venjast héðan. Það má líka spyrja sig hversu miklar kröfur er hægt að gera í ferð sem fæst á botnverði.






