Tíðindi

Ljúf sigling frá Kaupmannahöfn

  26/02/2013janúar 22nd, 2014No Comments

Ok! Það er klárlega ekki jafn sexí að þvælast um Eystrasalt og Karíbahaf á skemmtiferðaskipi. Engin ylvolg hafgola eða blaktandi pálmalauf við sjónarrönd og ekki alveg sama stemmning að hella í sig einum eða fleiri Cuba Libre á dekkinu. Fyrir utan að skipin sem sigla hér norðurfrá eru töluvert minni en flest skemmtiferðaskipin suður í höfum.

En það er bara samt eitthvað undarlega spennandi við skemmtisiglingu um Eystrasaltið og ekki síst þegar vor eða sumar er í lofti og skipið stoppar á forvitnilegum áfangastöðum. Og um það verður varla rifist að þó staðir á borð við Cancún, Bahamas eyjar eða St.Maarten  séu alveg hreint ágætir til síns brúks eiga þeir ekki roð í sögufrægar evrópskar miðaldaborgir.

Við minnumst á þetta sökum þess að nú er skipafélagið MSC að bjóða helmings afslátt á siglingum sínum í Eystrasalti ef bókað er með góðum fyrirvara og því hægt að verða sér úti um spennandi siglingar meðal annars frá Kaupmannahöfn.

Ein slík átta daga ferð með viðkomu í Kiel, Stokkhólmi, Pétursborg og Tallinn fæst á 180 þúsund íslenskar krónur á mann í káetu með svölum eins og sakir standa. Það er Scandinavian Cruise Center sem upp á slíkt býður en það verð er helmingi ódýrara en fullt almennt verð.

Fráleitt leiðinlegur túr þó ekki sé hægt að veðja hundrað prósent á sól og sælu eins og sunnar á hnettinum. Heimasíða Scandinavian Cruise Center hér.