Æ vintýragirni getur bæði verið okkar mesti kostur og okkur mesti löstur. Kostur vegna þess að án hennar værum við ansi litlaus hjörð en hún getur líka komið okkur í bullandi vandræði.
Meðan það er skiljanlegt og eðlilegt að vilja sjá og skoða heiminn og það ekki síðar en í gær eru nokkrir áfangastaðir sem best væri, allavega eins og sakir standa, að geyma þangað til næst… eða aldrei.
- Írak
- Ástandið mun betra en það hefur verið en útlendingar eru ennþá afar vinsælir… sem gíslar.
- Afganistan
- Hér eru allir erlendir þegnar sjálfkrafa óvinir ríkisins hjá stórum hópum. Talibanar gera sér að leik að drepa alla útlendinga sem þeir ná í hvort sem þeir vinna hjálparstörf eða að skoða markaði.
- Sómalía
- Það hafa alltaf verið til blaðamenn sem hætta á allt fyrir frétt. Síðustu tveir sem fóru inn í Sómalíu höfðu hvor um sig með sér 20 lífverði.
- Sri Lanka
- Eyjan gæti hæglega verið draumastaður ferðamanna en eilíf átök stjórnarliða og skæruliða gera út um þann draum. Ferðamenn eru skotmörk í sumum hlutum landsins.
- Burma
- Herstjórnin í landinu fer illa með alla, þar með talda ferðamenn. Milliríkjasamskipti eru einnig lítil og því er ferðalangur í vondum málum ef hann lendir upp á kant við lögin (sem nóg er af).
- Súdan
- Hryðjuverkamenn eiga sér enn griðastað í Súdan og mannslífin hafa sjaldan verið hátt metin á þeim slóðum. Einu gildir hvaða húðlitur á í hlut.
- Tæland
- Þó tekist hafi að lægja grimmar undiröldur að mestu hingað til eru íbúar ósáttir og minni háttar átök algeng. Enn sem komið er nokkuð frá helstu ferðamannastöðum en maður veit aldrei.
- Kólombía
- Stjórnvöld þar reyna mikið að freista ferðamanna enda stórkostlegt land að heimsækja. En mannrán og morð eru ekki alveg horfin þó Pablo Escobar sé það. Sérstaklega er varað við ferðum út á land.
- Haítí
- Púslin ætla aldrei að falla hjá íbúum Haítí. Rimmur og átök algeng og engum hlíft. Mannrán tíð og enginn óhultur allra síst þeir sem eru ljósir á hörund.
- Eritrea
- Hryðjuverkasamtök eiga þar samastað og mannslíf lítils virði.
- Lýðveldið Kongó
- Þó ástandið hafi batnað til muna hin síðari ár er undirliggjandi ólga í samfélaginu. Ferðamenn skulu forðast landsbyggðina.
- Líbería
- Himinn og haf milli þess þegar Charles Taylor réð hér ríkjum og stöðunnar nú. Engu að síður er vestrænum ferðamönnum hætta búin enda fátækt gríðarleg en vopnaeign algeng.
- Pakistan
- Öldur óánægju blunda í heimamönnum og ferðamannastaðir þykja ákjósanlegir til sjálfsmorðsárása eða sprengjutilrauna.
- Búrúndi
- Vopnuð rán algeng í bæjum og borgum og vænlegast að ræna sólbrunna ferðamenn enda eiga aðrir ekki marga seðla í vasanum.
- Nígería
- Óánægja með stjórnvöld og blóðugar skærur eiga sér reglulega stað inni í landinu. Ferðamenn njóta ekki sérafgreiðslu.
- Simbabwe
- Alið á ótta og hatri gegn hvítu fólki og barsmíðar næsta öruggar handa öllum þeim er lenda í hópi heimamanna.
- Indland
- Alvarleg hryðjuverk venja fremur en undantekning. Það á þó aðallega við um borgirnar en ofbeldi og ránum á ferðamannastöðum fer fjölgandi.
- Austur-Tímor
- Líkur á byltingu verið lengi og almenningur reiður. Dauði ferðamanns skiptir þá engu en kemur stjórnvöldum illa.
- Ísrael/Palestína
-
- Ferðamönnum engin sérstök ógn búin önnur en að lenda milli fylkinga þegar og ef átök blossa upp. Þau hafa verið algeng gegnum tíðina.
-




