Nafnið Hörmungarkaffi, Disaster Café, er kannski ekki frábærlega heillandi heiti á kaffi- og matsölustað og sennilega ástæða þess að sá staður opnar og lokar með reglulegu millibili. En ef það væri bara nafnið….

Disaster Café er staðsett í strandbænum Lloret de Mar í Katalóníu á Spáni og hefur unnið sér til nokkrar frægðar að bjóða gestum sínum upp á þá lífsreynslu að upplifa jarðskjálfta án þess þó að lenda í jarðskjálfta.

Staður þessi hefur frá árinu 2007 opnað og lokað reglulega en eftir því sem ritstjórn kemst næst er hann yfirleitt opinn á sumrin.

Þetta hljómar allt afskaplega fáránlega en veggir, gólf og þak veitingastaðarins hristast á ákveðnum tímum eins og geysiöflugur jarðskjálfti sé að ganga yfir. Með þessu fylgir dúndrandi hávaði og ljósasjó og erfitt að ímynda sér hvað getur verið svo heillandi að njóta kaffis eða víns við slíkar kringumstæður.

En ef mikill leiði sækir að fólki á ferð um Lloret de Mar…