Tíðindi

Joie de vivre á tilboði

  04/03/2013febrúar 4th, 2014No Comments

Hægt er að gera ótrúlega margt vitlausara en eyða lífsins stund í París eða Lyon í júní og júlí og nú stekkur Wow Air fram á sviðið með tilboð til beggja staða.

Fæst þannig flugfar aðra leið til Parísar í sumar á 15.800 krónur og til Lyon á 19.800 krónur en þar er ekki gert ráð fyrir neinum farangri.

Tilboðið er tímabundið til miðnættis í kvöld en gildir um ferðir eftir fyrsta júní en júní er sérdeilis góður tími til dúllerís um Frakkland. Júlí aftur á móti getur verið skrambi heitur fyrir bleiknefja frá Íslandi ef ekki er köld og heillandi sundlaug eða strönd í nánd.

Heimasíða Wow Air hér.