Það er aldrei leiðinlegt að gleyma lífsins áhyggjum undir sólinni á Tenerife. Enn betra að njóta þess umhverfis á lágmarksverði og þurfa ekki að hreyfa legg né lið fremur en vill á hóteli með öllu inniföldu.

Hin ágæta strönd Costa Adeje á Tenerife. Mynd John Cook

Hin ágæta strönd Costa Adeje á Tenerife. Mynd John Cook

Breska ferðaskrifstofan Broadway Travel dúndrar reglulega út þessum líka fínu kostaboðum og nú er þar hægt að verða sér úti um vikudvöl á ágætu hóteli með mat og drykk á Tenerife frá nóvember og fram í febrúar á völdum dagsetningum niður í 66 þúsund krónur íslenskar á mann miðað við tvo saman og  gengið. Þar er farangur ekki innifalinn.

Það á auðvitað töluvert skylt við brandara það verð en sem endranær þurfum við að bæta ofan á kostnaði við flug til London og heim frá London. Þá er ekki leiðinlegt að Wow Air er enn að bjóða fargjöld aðra leið þangað niður undir tíu þúsund krónur fram eftir vetri og því hægt að finna flug fram og aftur með einni tösku eða svo undir 30 þúsund krónum á mann.

Heildarverð gæti því orðið að lágmarki 96 þúsund krónur sem er samt sem áður dágott á þessum stað með öllu inniföldu. Ekki hvað síst með það í huga að hótelið í þessu tilfelli, Isla Bonita, er hið sama og Heimsferðir bjóða þennan veturinn líka. Það í beinu flugi reyndar en vikudvölin kostar manninn líka meira eða 143.400 eða samtals 286.800 á par eða hjón.

Sem þá þýðir að annars leiðinleg millilendingin í London sparar fólki allt að 90 þúsund krónur og jafnvel meira ef enginn er farangurinn. Munar um minna að okkar mati.

Tilboðið hér.