Stærsta hátíð heims, Októberfest í München, er ekki bara leðurbuxnadans á rósum. Opnunarhátíðin sem hófst nú um helgina þetta árið þótti takast frábærlega og ein milljón manns sögð á staðnum þrátt fyrir leiðinlegt veður. Þó ekki frábærar en svo að tæplega átta hundruð manns þurftu að leita sér læknisaðstoðar.

Þegar margir bjórar koma saman geta hlutir farið nokkuð úr böndum. Mynd Jered Kellly

Þegar margir bjórar koma saman geta hlutir farið nokkuð úr böndum. Mynd Jered Kellly

Yfirleitt fer lítið fyrir neikvæðum hliðum hinna ýmsu viðburða í veröldinni en neikvæðar hliðar Októberfest eru æði margar ef út í það er farið. Átta hundruð manns kann að hljóma mikill fjöldi fólks en er innan við eitt prósent af gestum þessa fyrstu helgi. Alls vonast borgaryfirvöld til að eigi færri en sex milljónir gesta komi hér við meðan Októberfest stendur en metið er sagt vera 6.8 milljónir fólks.

Stærstur hluti þeirra sem þurftu á neyðarmóttöku voru með skrámur og mar eftir slagsmál og læti. Það segir sig sjálft að hér er fjöldi fólks sem kann illa að drekka áfengan mjöð í lítravís heilu og hálfu dagana og sumir þeirra missa sig í æsingi eins og gengur.

En að sögn dagblaðsins Münchner Merkur þurftu um 20 manns líka að gista á sjúkrahúsi sökum áfengiseitrunar. Heldur dapurlegur endir á skemmtilegri hátíð þar.

Hátíðin stendur linnulaust næstu fjórtán daga ef einhver fær þá skyndihugmynd að drífa sig á staðinn. Þá sem endranær finnast lægstu verð á gistingu á hótelvél Fararheill.