Innan tíðar þurfa aðdáendur Manchester United sem vilja gera vel við sig í mat og drykk og jafnvel gistingu ekki að hafa mikið fyrir hlutunum. Spottakorn frá Old Trafford leikvanginum fræga er nú verið að leggja lokahönd á glænýtt hótel þar sem boltinn verður númer eitt, tvö, þrjú og fjögur og aðdáendur United þar í bestu sætum.

Old Trafford til vinstri og Hotel Football fyrir miðri mynd. Nú geta jafnvel drukknustu einstaklingar komist á leikina. Mynd Hotel Football

Old Trafford til vinstri og Hotel Football fyrir miðri mynd. Nú geta jafnvel drukknustu einstaklingar komist á leikina. Mynd Hotel Football

Þegar við meinum spottakorn þá meinum við spottakorn. Hótelið stendur við einn enda leikvangsins svona um það bil 50 skrefum frá inngangi vallarins. Töluvert auðveldara nú að skrölta á leikinn fyrir þá sem ósjaldan fá sér aðeins of mikið neðan í því fyrir leik eins og ekki er óalgengt. Ekki síður stutt að fara til að skála ef United tekur þrjú stig eða svo.

Hótelið atarna heitir Hotel Football og er allt þar inni hannað með fótboltann að leiðarljósi. Það kemur lítt á óvart þegar í ljós kemur hverjir eigendurnir eru en báðir gerðu lengi garðinn frægan sem leikmenn liðsins. Gary Neville og Ryan Giggs heita þeir og eiga næga peninga til að gera hér allt eins tipp topp og tipp topp getur orðið.

Þó staðurinn opni ekki formlega fyrr en í byrjun desember er þegar tekið við bókunum. Einhver íslenskur aðdáandi færi létt með að monta sig af því að hafa verið manna fyrstur á staðinn.

Heimasíðan hér.