Koma tímar, koma ráð segir máltækið og ólíkt mörgum öðrum klisjukenndum frösum sannarlega satt og rétt. Ekki hvað síst á þetta við fyrir ferðaþyrsta.
Að frátöldum stöku sérvitringum þurfum við öll reglulega að yfirgefa klakann til að komast í siðmenningu sem er eldri en tvævetur. Breiða út vængi okkar í funheitum sandinum á Algarve, etja kappi í kotru við heimamenn í Ankara, finna fönn í Ölpunum, prófa teygjustökk í Zambíu, borða framandi götufæði í Chiang Mai og valsa um München í engu nema leðurbuxum svo fátt eitt skemmtilegt sé nefnt.
Utanlands harðnar sífellt samkeppni flugfélaga og ferðaskrifstofa sem efalítið er ein ástæða þess að þrátt fyrir efnahagslægðir og kreppur sést varla högg á vatni þegar kemur að ferðalögum fólks. Ferðalöngum fjölgar linnulaust og samkvæmt spám mun fjölga mun meira á næstunni þegar milljónir manna í Kína og á Indlandi komast í nægar álnir til að þvælast út fyrir steina þeirra landa.
Með ferðaskrifstofum íslenskum gefst okkur færi að flakka töluvert en úrvalið sem fyrr takmarkað mjög og ferðir almennt dýrar. Því er óvitlaust að beina sjónum annað ef ferðaúrvalið hér kemur blóðinu ekki á hreyfingu mikið. Það ættu hins vegar neðangreind ferðatilboð að gera ef lífsmark er á annað borð í kroppi.
A) Sjö nætur í Paphos á Kýpur með hálfu fæði fyrir 55 þúsund krónur
Breska ferðaskrifstofan Travelwasp er að bjóða hreint ágæt tilboð frá Bretlandi til Kýpur frá nóvember og fram í mars á næsta ári og lægsta verð á mann miðað við tvo 55 þúsund miðað við gengi dagsins. Ekki of langt að fara en samt komist í allgott veður og það jafnvel í desembermánuði en þá er meðalhitastig á eynni kringum fimmtán gráður. Hér þarf aukalega að greiða fyrir flug til London og heim aftur en með fyrirvara er slíkt auðfundið niður í 20 til 25 þúsund krónur á mann. Þannig má njóta vetrarsólar á ljúfum stað á hnettinum undir 80 þúsund alls á manninn. Meira hér.
B) Ellefu nátta sigling með drottningunni sjálfri fyrir 117 þúsund krónur
Hún er kannski ekki á pari við mestu lúxusskipin en sögufrægara skip en Queen Elizabeth er vandfundið sé Titanic undanskilið. Auðvitað er hér aðeins verið að pretta því þetta ákveðna skip er glænýtt þó nafnið sé gamalkunnugt. Það ekki endilega verra þegar í boði er að njóta siglingar í ellefu nætur í desember um Miðjarðarhaf og endað í Englandi. Ferðaskrifstofan Iglu Cruises er að bjóða þá ferð og það í káetu með svölum með yfir hundrað þúsund króna afslætti á tiltekinni dagsetningu. Flogið til Rómar þaðan sem fólk stígur um borð og nýtur svo lífsins næstu tíu daga. Verðið á þessari ferð aldeilis frábært eða 117 þúsund krónur á mann miðað við tvo. Plús auðvitað flugið til London og heim sem við bætist en gerir tilboðið engu síður spennandi. Meira hér.
C) Magnaðir afslættir hjá besta flugfélagi Evrópu
Ef þið þarna úti eruð eitthvað skyld ritstjórn Fararheill þá viljið þið helst skipuleggja allt sjálf og spara þannig meira og njóta yfirleitt betur. Óvitlaus byrjun á slíkri ferð gæti verið flug með besta flugfélagi Evrópu, Turkish Airlines. Flugfélagið er með fantagóð tilboð á flugi hingað og þangað frá allflestum áfangastöðum sínum fram til lok þessa mánaðar. Sem dæmi má nefna að komist er frá Frankfurt er hægt að bóka fram og aftur til Istanbúl fyrir rétt rúmar 20 þúsund krónur. Frá Edinborg er í boði að fljúga til Teheran allt niður í 65 þúsund krónur fram og aftur og frá London er hægt að finna flug alla leið til Dar es Salaam í Tanzaníu fyrir litlu hærra verð. Tilboðin gildar á tilteknum dagsetningum vel fram á næsta ár svo góður tími er til stefnu. Hér sem fyrr þarf að komast til Edinborgar, Frankfurt eða London en eins og ítrekað hefur verið þarf það ekki að kosta mikið ef forsjálni er í forgangi. Meira hér.
D) Besta verð á gistingu hvar sem er og hvenær sem er
Við skömmumst okkar ekkert fyrir að ota tota þegar kemur að gistingu erlendis. Hótelbókunarvél Fararheill er nefninlega sú allra besta undir sólinni. Hún finnur nefninlega öll tilboð sem aðrir finna og gott betur en það. Engar ýkjur, prófaðu bara.








