Nokkrir dagar eru síðan Fararheill greindi lesendum sínum frá því að taka öllum skjáauglýsingum Icelandair með salti og pipar eins og lesa má um hér. En það eru fleiri aðilar sekir um að blekkja fólk með slíkum auglýsingum.

Primera Air hans Andra Más Ingólfssonar er líka sekt um blekkingar. Við rákumst á skjáauglýsinguna hér til hliðar á vafstri um netið. Alltaf gaman þegar „íslenskt“ fyrirtæki stafar núna sem nuná. Það til þess fallið að bæta allan skilning á íslenskri tungu.

Burtséð frá stafsetningarvillum flugfélags markaðsmanns ársins 2007 er öllu verra að auglýsingin er kolröng. Alicante lægst frá 19.999?

Hreint ekki ef við kíkjum á vef Primera Air og skoðum flugferðir aðra leið til Alicante. Þá, merkilegt nokk, finnst þetta hér:

Lægsta verð aðra leið til Alicante með Primera Air kostar ekki 19.900 krónur samkvæmt þessu. Það kostar 12.995 krónur!

Sem auðvitað er öllu hagstæðara verð fyrir okkur almúgann en hver tekur mark á auglýsingum þegar ítrekað er farið með rangt mál?

Fagmennska mikið á undanhaldi hjá þessum flugfélögum…