Fyrir þau okkar sem ferðast oft og mikið án þess að taka annan farangur með en nærur, sokka og tannbursta í handtösku hafa síðustu ár verið gósentími. Þannig má til dæmis stytta yfirstandandi janúarmánuð og njóta stunda í Póllandi án þess að greiða krónu meira en fimmtán þúsund alls.

Vart komist erlendis á lægra verði en þetta hjá Wizz Air. Skjáskot

Nú á dögum má skjótast til London og heim aftur með nokkuð litlum fyrirvara fyrir þetta fimmtán til tuttugu þúsund krónur ef fólk er ekki að drusla fataskápnum með sér í tösku. Það helgast af samkeppni, nokkuð sem innlend flugfélög hafa ekki þurft að hafa áhyggjur af lengi vel.

En London er aðeins í þriggja stunda fjarlægð. Það er örlítið lengra til Póllands þó styttra sé en fólk gerir sér grein fyrir á landakorti. Flugtími til vinsælla borga Póllands er aldrei lengri en fjórar stundir til samanburðar.

Þess vegna vekur athygli að hjá lággjaldaflugfélaginu Wizz Air má finna flug í þessum mánuði út til Gdansk og heim aftur án farangurs fyrir tæpar 15 þúsund krónur. Lægsta fargjald út kostar heilar 3.000 krónur án farangurs.

Kjörið ef þig langar að stytta janúarmánuð á framandi stað svo ekki sé minnst á að versla. Verðlag í Gdansk er brandari og meira að segja útsölur í London komast ekki niður í það verð sem sams konar vara kostar í verslun í Gdansk. Svo er hún kjaftfull af forvitnilegum hlutum fyrir þá forvitnu.