Af og til síðustu misserin höfum við sett samasemmerki milli Wow Air Skúla Mogensen og versta lággjaldaflugfélags Evrópu enda sífellt minni munur á þeim tveimur flugfélögum. Nú hefur Wow Air, eins og Ryanair, lokað fyrir gestaumsagnir á fésbókinni.
Merkilegt verður að segjast. Við hér hefðum frekar veðjað á að Skúli færði slæma hluti til betri vegar en beita ritskoðun og loka á umsagnir á vinsælum fésbókarvef flugfélagsins. Það er jú fátt jafn mikilvægt fyrirtækjum en viðbrögð frá viðskiptavinum. Það er að segja þeim fyrirtækjum sem hafa áhuga á því að bæta sína þjónustu.
En góð þjónusta kostar peninga og kannski er Skúli orðinn blankur, of gráðugur eða er alveg sama um viðskiptavini og hugsanlega viðskiptavini eins og eigandi Ryanair er heimsfrægur fyrir. Eða hvaða önnur rök getur flugfélag fært fyrir að loka á umsagnir á vinsælasta samfélagsvef heims?
Engin vafi getur leikið á ástæðu þessa nú. Undanfarnar vikur hefur flugfélagið fengið það verulega óþvegið á samfélagsmiðlum vegna tafa og vandræða sem illa gengur að komast fyrir og kannski fékk eigandinn upp í kok af neikvæðu umtali. Betri er Stalinísk ritskoðun en að sannleikurinn fái vængi.
Illu heilli fyrir milljarðamæringinn Mogensen og flugfélag hans þá getur hann ekki lokað á alla samfélagsmiðla þó glaður vildi. Neikvæð skrif um Wow Air hrúgast inn á Twitter svo dæmi sé tekið og ekki er skortur af neikvæðni í garð Wow Air á þeim fjölda einkunnavefa sem finnast á netinu.







Aðeins er tímaspursmál áður en Wow Air fellur niður í þrjár stjörnur á einkunnavef Skytrax eftir að hafa náð upp í sjö stjörnur þegar best lét. Ágætt að hafa í huga að hið miður ágæta flugfélag Iceland Express hékk líka í þremur stjörnum á þeim virta lista og ekki kunnu Íslendingar sérstaklega vel við það flugfélag.







