Fátt er svo með öllu gott. Nú er sannarlega komist til Kúbu frá ýmsum stöðum í Bandaríkjunum og það á bærilegu verði. En skortur á gistingu á eynni hefur sprengt upp gistikostnað á móti.

Samkvæmt lauslegri úttekt Fararheill kemst fólk fram og aftur til Kúbu frá New York með JetBlue og tösku meðferðis lægst fyrir rúmlega 35 þúsund krónur en 45 þúsund krónur þó algengara verð fram og aftur. Fram og aftur með sama flugfélagi frá Flórída tæmir veskið um rétt rúmar 20 þúsund krónur eða svo að minnsta kosti. Þrjátíu þúsund nærri lagi svona almennt.

Tuttugu þúsund kann að hljóma vel en er nokkuð dýrt þegar haft er í huga að frá Flórída tekur flugið hvora leið fyrir sig rétt um klukkustund. Svipað langt flug með lággjaldaflugfélögum í Evrópu kostar sjaldan meira en tíu til tólf þúsund krónur báðar leiðir.

En það er mínus á móti þessum plús og hann sá að skortur á gistingu á Kúbu hefur sprengt upp verð á gistingu og það duglega síðustu mánuðina. Í Havana þykir nú æði vel sloppið að finna fjögurra eða fimm stjörnu gistingu undir 30 þúsund krónum per nótt. Sömuleiðis hefur næturgjald á hinum heimilislegu casas particulares hækkað um 15 prósent frá því að fyrstu farmarnir af Bandaríkjamönnum stigu á land á síðasta ári.

Enn eru þó blikur á lofti varðandi ferðir Bandaríkjamanna til Kúbu sem gæti snúið þessari þróun við. Það er ef næsti forseti landsins gerir alvöru úr hótunum sínum að setja aftur viðskiptabann á Kúbu. Þá er flugferðum sjálfhætt um leið. Hvort það verður raunin kemur í ljós fljótlega eftir að nýr forseti tekur við síðar í þessum mánuði.