Minnst þrír stórir innlendir fjölmiðlar hafa gert sér mat úr tölfræðiúttekt bandaríska fjölmiðilsins Bloomberg á tafsömustu flugfélögum heims en þar munar litlu að íslenska flugfélagið Icelandair fái gullverðlaun fyrir verstu stundvísina á heimsvísu.

Millinafn Icelandair þessi dægrin er Seinkun en fleiru um að kenna en flugfélaginu einu saman.

Klárlega ekki gullverðlaun sem forráðamenn Icelandair hefðu upp á hillu í skrifstofunni. Nógu slæmt að vera metið annað versta flugfélag heims þegar að stundvísi kemur. Ekki síst eftir að forstjórinn hefur fullyrt opinberlega að stundvísi sé „einn af höfuð áhersluþáttum í rekstri Icelandair.“ Hvað segir það um aðra þætti í rekstri Icelandair ef „eitt höfuð áhersluatriðið“ fokkast svo mjög að fyrirtækið toppar á heimsvísu?

Frétt Bloomberg byggir á tölfræðiupplýsingum frá fyrirtækinu FlightStats sem hefur lengi vel safnað saman ýmis konar tölfræði um flug, flugfélög og flugvelli heims og þykir með þeim bestu í þeim geira. Fararheill oft og ítrekað vitnað í FlightStats gegnum tíðina.

Þó Icelandair sé eina íslenska flugfélagið sem kemst á tossalista FlightStats fer fjarri að Wow Air sé í mikið betri málum. Athugulir lesendur okkar vita sem er að fyrirtækið hefur alveg hent fyrir róða einu helsta slagorði fyrirtækisins frá upphafi: „stundvísasta flugfélag landsins.“ Eðlilega, enda stundvísi Wow Air ekki upp á marga fiska heldur.

Vitaskuld skiptir stundvísi höfuðmáli í flugi engu síður en í öðrum samgöngum en í ofangreindum tilfellum er bæði eðlilegt og sanngjarnt að hafa hugfast að bæði flugfélög eru að nota Keflavíkurflugvöll og nánar tiltekið Leifsstöð. Sú stöð sprakk í tætlur árið 2014 og hefur aðeins versnað síðan sökum mikillar aukningar ferðafólks eins og allir sem ferðast reglulega geta vitnað um. Það er seinlegt að fara gegnum þá flugstöð og stundum hrein martröð þegar verst lætur. Löng bið í innritun, löng bið gegnum öryggisleit, löng bið í kaffi og kleinu og svo framvegis og svo framvegis.

Tafir í flugstöðinni hafa bein áhrif á lendingar og brottfarir þar sem stór hluti farþega um Leifsstöð eru tengifarþegar að vestan eða austan. Flugfélögin geta nánast ekki annað en látið vél til Parísar bíða ef ef ein vél er 20 mínútum of sein frá Bandaríkjunum og í henni 30 tengifarþegar til Parísar. Það kostar formúgu í bætur ef þeir hinkra ekki við.

Auðvitað er stóraukinn ferðamannafjöldi að hluta til flugfélögunum sjálfum að kenna en það breytir ekki því að rós veitist erfitt að springa út umvafin illgresi.