Fararheill hefur áður ýjað að því að á köflum minnir Wow Air dálítið á hið heldur herfilega flugfélag Iceland Express. Til dæmis er varðar stundvísi.

Stundvísi ekki merkileg hjá Wow Air. Mynd Wow Air
Samkvæmt úttekt Dohop á flugferðum til og frá Keflavík í janúarmánuði virðist vera sem starfsfólk Wow Air kunni ekki á klukku. Í það minnsta lentu vélar Wow Air aðeins á réttum tíma í 50% tilvika!!!
Það er frámunalega léleg frammistaða. Sérstaklega þegar haft er í huga að það er fimmtán mínútna gluggi á „réttum tíma“ á flugi. Það er að segja að vél sem á að lenda sem dæmi kl. 20 telst vera stundvís ef lent er 20:15. Meiri tafir en fimmtán mínútur urðu því á HELMINGI allra flugferða Wow Air i janúar.
Harður aðdáandi Wow Air gæti bent á að það sé nú umhleypingasamur janúar og því ekkert að marka dapra stundvísi. Það kann að vera skýring en þau rök fjúka út í veður og vind þegar mið er tekið af Icelandair. Það flugfélag hefur aldrei fengið verðlaun fyrir stundvísi en náði samt 70% stundvísi í sama mánuði og hér er um rætt.







