Líklega þarf að sparka í einhvern rass á markaðsdeild Icelandair. Lítið samræmi virðist vera milli uppgefins verðs á flugi í skjáauglýsingum flugfélagsins og raunverðs.

Þessa skjáauglýsingu Icelandair höfum við rekist á þrívegis þennan daginn. En hvað er vitlaust við myndina? Skjáskot

Það stríðir mót flestum lögmálum markaðsfræðinnar að auglýsa vörur eða þjónustu á hærra verði en reyndin er. Þó má vissulega deila um jákvæð sálfræðileg áhrif viðskiptavinar sem eltir uppi vöru eftir auglýsingu aðeins til að komast að því að hún er miklu ódýrari en gefið hafði verið í skyn. Sá þykist væntanlega hafa komist í feitt og lofar fyrirtækið í bak og fyrir.

En það dregur með öllu úr áhrifamætti auglýsinga og trausti fólks á þeim ef auglýst verð stemmir ekki hundrað prósent þegar varan er keypt.

Skjáskotið hér að ofan hefur birst okkur þrívegis þennan daginn á hinum ýmsu vefmiðlum. Við fyrstu sýn virðist þetta ekkert óeðlilegt. Flug til Frankfurt niður í 20.800 krónur hljómar nokkuð eðlilegt miðað við Icelandair.

En eitthvað rak okkur minni til að eitthvað hér stemmdi ekki. Við fórum því á vef Icelandair og þar neðarlega á forsíðu má finna lægsta flugfargjald flugfélagsins aðra leið til allra þeirra áfangastaða. Og hvað haldiði að við höfum fundið þar?

Hmmm. Töluvert lægra verð uppgefið á vef Icelandair en það auglýsir í skjáskotum? Við leit fundum við flug aðra leið niður í 17.400 svo það stemmir. Hvers vegna í ósköpunum flugfélagið auglýsir hér og þar hærra verð en raunin er skal ósagt látið.