Vika er sögð langur tími í pólitík. En tæpt ár er skammur tími í flugbransanum og tíminn virðist lítil áhrif hafa á stöðu mála þar.

Engin spurning hver býður betur til Montreal í sumar. Samsett mynd

Engum blöðum er um að fletta með hvaða flugfélagi þú ættir að bóka ef Montreal í Kanada er draumastaðurinn næsta sumar. Úttekt Fararheill leiðir í ljós að þar ræður Wow Air feitum ríkjum og gildir einu hvort fólk ferðast með tannbursta í buxnavasa eða tekur tvær töskur með sér eins og leyfilegt er hjá Icelandair.

Við framkvæmdum sams konar úttekt í maí 2016 sökum þess að þá leið að því að bæði Wow Air og Icelandair hæfu áætlunarflug til Montreal. Í það skiptið reyndist Icelandair bjóða lægra verð aðra leiðina út í ágústmánuði en lággjaldaflugfélagið Wow Air þrátt fyrir töskuleysi hjá Wow eins og sjá má hér.

Það ekki lengur svo. Stikkprufur á sex mismunandi dagsetningum frá júní og fram í september leiða glögglega í ljós að ekki aðeins eru fargjöld Icelandair hærri í öllum tilfellum heldur og heimtar Icelandair nú meiri peninga fyrir sama flugið en síðasta sumar. Þetta má glögglega sjá á meðfylgjandi töflu. Þar sést lægsta fargjald beggja flugfélaga á sex mismunandi dagsetningum. Þar sem Icelandair býður fólki að taka tvær töskur með til Kanada tókum við líka tékk á Wow Air með tveimur töskum meðferðis. Í öllum tilvikum er Wow Air með vinninginn og hér óhætt að hafa í huga að í flestum tilfellum bauð Icelandair ekki einu sinni beint flug heldur millilendingu með svona ef einhver fílar það.

* Úttekt gerð kl. 20 þann 2. janúar 2017. Leitað samtímis á vefum beggja flugfélaga og lægsta verð aðra leið út fundið á viðkomandi dagsetningu. Tveimur töskum bætt við hjá Wow Air í seinna tilvikinu.