Peningar af skornum skammti en þig dauðlangar samt til Montreal í Kanada í sumar. Hvort er þá vænlegra að skottast yfir hafið með Icelandair eða Wow Air?

Wow Air heilt yfir að bjóða mun betur en Icelandair til og frá Montreal samkvæmt úttekt Fararheill

Wow Air heilt yfir að bjóða mun betur en Icelandair til og frá Montreal samkvæmt úttekt Fararheill

Aldrei þessu vant er samkeppni á þessari flugleið milli íslensku flugfélaganna og því kjörið að gera verðsamanburð. Sá hængur þó á að enginn farangur fylgir flugfargjöldum Wow Air en tvær 23 kílóa töskur innifaldar í miðaverði á öllum farrýmum Icelandair. En það eru lausnir á öllu.

Hér í fyrstu töflunni má sjá lægsta fargjald beggja flugfélaga aðra leiðina út og einnig fargjald Wow Air ef við hendum með tveimur töskum eins og Icelandair býður. Þó með þeim formerkjum að Wow Air heimilar aðeins 20 kíló í hverja tösku móti 23 kílóum per tösku hjá Icelandair. Þá er niðurstaðan þessi:

En flest þurfum við aftur heim eftir borgarferð á erlenda grundu. Þá er ráð að kanna hvort eitthvað breytist þegar leitað er að lægsta fargjaldi fram og aftur innan hvers sumarmánaðar 2016. Þá kemur þetta í ljós:

Voilà! Þá liggur það fyrir. Wow Air heilt yfir að gera gott mót hvort sem áhugasamir pakka í töskur eða sleppa þeim alfarið. Sérstaklega áberandi munur í júnímánuði og ritstjórn sem fyrr hvetur landann til að ferðast meira þann mánuð því almennt á vesturlöndum hefst enginn annatími í ferðabransanum fyrr en í lok júní og því verðlag almennt lægra á gistingu og bílaleigu og öðru slíku.

* Úttekt gerð kl. 20.00 hjá báðum aðilum samtímis. Hafa skal hugfast að verðbreytingar hjá flugfélögunum eru örar.