Dohop, Wow Air, Icelandair, hótelbókanir, TripCreator. Allir þessir aðilar auglýsa alls staðar vel og mikið að þeir bjóði lægsta verð á gistingu hvarvetna í veröldinni. Því miður láta flestir blekkjast.

Þetta lítur spennandi út. Matsalur Das Stue í Berlín. Mynd Das Stue

Þetta lítur spennandi út. Matsalur Das Stue í Berlín. Mynd Das Stue

Þetta er ekki í fyrsta skipti sem við ætlum að sýna og sanna að þú finnur raunverulega lægsta verð á gistingu hjá okkur hjá Fararheill. Svo mikið lægra verð að þér gæti nú blöskrað. Eins og okkur blöskrar þegar fólk hugsunarlítið bókar gistingu um leið og flug af því það er svo einfalt og þægilegt. Þau þægindi kosta drjúgan skilding gott fólk.

Að þessu sinni veljum við besta hótelið í Berlín í Þýskalandi samkvæmt 2015 lista TripAdvisor. Það er fimm stjörnu hótelið Das Stue við Tiergarten.

Við veljum líka af handahófi góða helgarreisu og fyrir valinu varð 10.til 14. desember að þessu sinni. Tímasetningin skiptir þó engu eins og þú getur sjálf/sjálfur gengið úr skugga um með samanburði.

Á vef TripAdvisor fæst uppgefið verð á hótelum sem þar finnast. Þar fæst gisting umrædda helgi á Das Stue á Booking.com, sömu bókunarvél og íslensku fyrirtækin nota og ota að þér.

Af TripAdvisor förum við yfir á vef Booking sem færir okkur þetta. Skjáskot

Af TripAdvisor förum við yfir á vef Booking sem færir okkur þetta. Skjáskot

Sé farið inn á vef Booking.com frá vef TripAdvisor færð þú meðfylgjandi mynd. Við fáum helgarferðina okkar, 10. til 14. desember, hér fyrir 125.142.

En vitibornir lesendur Fararheill vita sem er að sjaldan er allt sem sýnist. Sérstaklega ekki þegar kemur að stórfyrirtækjum eins og Booking.com.

Víkur nú sögunni að hótelbókunarvef Fararheill.  Ólíkt risanum Booking.com sem er í eigu risafyrirtækis í Bandaríkjunum er okkar vefur ástralskur og enn í eigu þeirra sjö einstaklinga sem stofnuðu hann í bílskúr í Sidney árið 2005. Hann var stofnaður af því að sjömenningunum blöskraði lítið aðgengi að samanburðarsíðum vegna hótela og ferðalaga.

Flettum upp helgarpakkanum okkar hjá Das Stue 10. desember til 14. desember og það sem við fáum má sjá hér að neðan:

Hmmm. Einir SEX aðilar að bjóða mun lægra verð en finnst hjá Booking? Verðmunurinn drjúgur fyrir fjórar nætur.

Hmmm. Einir SEX aðilar að bjóða mun lægra verð en finnst hjá Booking? Verðmunurinn drjúgur fyrir fjórar nætur.

Þrátt fyrir að Booking sé „mest og best“ eru einir SEX aðilar aðrir að bjóða mun lægra verð á nákvæmlega sömu gistingu sömu daga. Við bjóðum gistingu hér umrædda viku á herbergi fyrir tvo lægst á 96.724 krónur. eða tæplega 29 þúsund króna lægra verði en TripAdvisor segir allra besta verð hjá Booking. Og þessi munur á aðeins fjórum nóttum!!!

Niðurstaðan eins og alltaf: ekki láta plata þig.