Þó ekki sé sniðugt að alhæfa um neitt undir sólinni er óhætt að slá því nokkuð föstu að það er af sem áður var að fólk þyrfti að bóka flug eða ferðir með löngum fyrirvara til að negla ásættanlegt verð.

Ekki neitt að þessu 🙂
Þetta hefur breyst verulega með tilkomu lággjaldaflugfélaga og ekki hvað síst með Wow Air. Þar hika menn lítt við að botnsetja gjöld fyrir flugsæti ef stutt er í ferð og sala verið dræm.
Þetta er þvert á stefnu til að mynda Icelandair, sem heimtar sífellt feitari tékka því nær sem dregur jafnvel þó vélin sé hálftóm. Þar bókar enginn með dags fyrirvara og fær túrinn á lágmarksverði. Þar kostar, svo eitt dæmi sé tekið, litlar 53 þúsund krónur að fljúga aðra leið með flugfélaginu til Oslóar eftir tvo daga kemur að því er fram kemur á bókunarvef Icelandair.
Á meðan getur fólk skottast með Wow Air til Bristol, Dublin eða Vasteras í Svíþjóð næstu tvo til þrjá sólarhringa allt niður í 8.998 krónur aðra leið. Allt flugleiðir sem eru jafnlangar eða lengri en til Oslóar.
Sjálfsagt að nýta sér þetta og rúlla með betri helminginn í óvænta helgarferð til Evrópu án þess að leita á náðir bankastjóra.







