Enn í vafa hvert skal halda í ferðalag á næstunni? Evrulöndin er sennilega þinn allra besti kostur þessa síðustu og verstu.

Krónan styrkist sem er slæmt fyrir auðgreifana okkar en gott fyrir okkur hin 🙂
Ástæða þess er að íslenska krónan er hægt og bítandi að styrkjast með bættum efnahag á sama tíma og evran svamlar í súru brimróti án þess að komast mikið fram né aftur. Það merkir að nú er meðalgengi einnar evru rösklega 138 krónur en lægra hefur almennt gengi hennar gagnvart íslenskri krónu ekki verið síðan 30. september 2008.
Þetta merkir að þú kaupir nú eina evru á sjö til átta krónu lægra verði en á sama tíma fyrir ári síðan og rúmlega tíu krónum lægra en fyrir tveimur árum eins og sjá má á meðfylgjandi gengistöflu.
Auðvitað skipta einhverjir tíkallar til eða frá litlu máli á ferðalögum en ef dvalið er lengi eða oft er farið, svo ekki sé talað um ef verslað er út í hið óendanlega, þá fara þessar tölur að telja.
Einhver kynni að benda á að bandaríski dollarinn sé nú gáfulegri kaup en evran um þessar mundir. Dollarinn einnig verið á fallandi fæti gagnvart krónu síðustu vikur þó aðeins hafi gengið til baka síðustu daga og meðalgengi eins dollars nú um 124 krónur.
Hér skal þó taka tillit til að þó verðlag á vörum og þjónustu vestanhafs geti verið lægra en víða í Evrópu þá gildir hið sama ekki um gistingu. Gisting vestanhafs undantekningarlítið dýrari en í okkar álfu. Menn heppnir að negla nótt á góðu hóteli í New York eða Boston undir 30 þúsund krónum meðan finna má sams konar gistingu í stórborgum Evrópu allt niður í tíu þúsund per nótt. Allur gengissparnaður þannig fokinn út í veður og vind.







