Merkilegt fyrirtæki er bókunarvélin Hotels.com. Ekki aðeins er móðurfélag þess, Expedia, eitt hið allra stærsta í veröldinni sem geymir fjármuni sína í skattaskjólum og kemst þannig undan sköttum heldur þykir þeim ekkert tiltökumál að ljúga og blekkja í auglýsingum líka.

Þvílík tilboð Hotels.com. Verst að þau eiga ekkert skylt við raunveruleikann. Skjáskot
Í þau skipti sem við höfum bent á vankanta þess að eiga viðskipti gegnum bókunarvél Hotels.com hafa stöku einstaklingar risið úr öskunni öskureiðir og blammerað okkur fyrir að dirfast að gera lítið úr þessa fræga fyrirtæki. Fyrirtæki sem býður meira að segja eina fría nótt þegar gist er tíu nætur eða lengur á þess vegum einhvers staðar í veröldinni.
Það eru gömul sannindi að ekkert er frítt í heiminum og bandarísk stórfyrirtæki eru ekki góðgerðarstofnanir. Það þarf ekki lengi að leggja haus í bleyti til að átta sig á því hvers vegna tíunda hver nótt er frí hjá risa í hótelbókunarbransanum. Hotels.com er ekki risi vegna þess að fyrirtækið er alltaf að gefa eitthvað. Málið frekar það að sú þóknun sem fyrirtækið heimtar af gististöðum á vef sínum er nógu há til að geta hent einni aukanótt í viðskiptavininn ef hann gistir nógu lengi. Það sem viðskiptavinurinn áttar sig ekki á er að hann greiðir hærra verð fyrir hinar níu næturnar í staðinn.
En látum liggja milli hluta að gistiverð hjá Hotels séu almennt hærri en annars og líka að fyrirtækið greiðir nánast enga skatta neins staðar í heiminum líkt og annað risafyrirtæki í sama geira; Priceline sem á og rekur Booking.com svo fátt sé nefnt.
Það sem við gerum alvarlegar athugasemdir við eru vefauglýsingar á borð við þær sem fylgja greininni þar sem Hotels auglýsa næturgistingu á flottum hótelum á verði sem eiga ekkert skylt við raunveruleikann.
Við höfum áður fjallað um þetta sama eins og lesa má um hér. En fyrirtækið heldur áfram að auglýsa gistingu á verði sem ekki er í boði þegar eftir er leitað. Væri til of mikils mælst að starfsfólk Neytendastofu hætti augnablik að bora í nefið og banni og sekti Hotels.com fyrir uppátækið?
Nema það sé bara löglegasta mál að auglýsa vörur á langtum lægra verði en það er í raun og veru? Þá ætti öðrum fyrirtækjum að vera í lófa lagið að beita sömu blekkingum engum til hagsbóta…







