Smekklegheitin ríða ekki við einteyming hjá Primera Group hans Andra Más Ingólfssonar. Flugfélagið Primera Air selur alls engin flugsæti til Kanaríeyja yfir háveturinn. En dótturfélagið Heimsferðir gerir það og heimtar litlar hundrað þúsund krónur fyrir sætið.

Primera Air selur engin flugsæti til Kanaríeyja en lætur dótturfyrirtæki gera það fyrir sig gegn þungu gjaldi.

Primera Air selur engin flugsæti til Kanaríeyja um jól eða áramót en lætur dótturfyrirtæki gera það fyrir sig gegn þungu gjaldi.

Það er ekkert leyndarmál að landinn elskar Kanaríeyjar og ekki hvað síst yfir dimmustu vetrarmánuðina frá nóvember og fram til febrúar. Vinsældir vetrarferða til spænsku eyjanna voru slíkar síðastliðinn vetur að fréttamiðlum þótti ástæða til að greina frá.

Hvernig ætli sé nú best að koma til móts við þær þúsundir Íslendinga sem langar að stytta þungan vetur undir Kanarísól þessa vertíðina með tilliti til vinsældanna síðustu árin? Jú, fellum niður flugferðir gegnum Primera Air og gerum fólki ókleift að fljúga þangað nema kaupa dýrustu flugsæti norðan Alpafjalla gegnum ferðaskrifstofuna.

Það virðist hafa verið niðurstaða fundar hjá Heimsferðum sé miðað við að móðurfélagið Primera Air hættir að selja flugsæti til Kanarí (Gran Canaria) eða Tenerife í lok október og býður ekki flugsæti að nýju fyrr en í lok janúar.

Heimsferðir vill þvinga viðskiptavini sína til að kaupa pakkaferðir í stað þess að láta flugið nægja og græja restina sjálf.

Heimsferðir vill þvinga viðskiptavini sína til að kaupa pakkaferðir í stað þess að láta flugið nægja og græja restina sjálf.

Dótturfyrirtækið Heimsferðir selur hins vegar flugsæti í nóvember, desember og janúar með Primera Air. Og þrátt fyrir að vera í kjörstöðu til að fá góðan afslátt hjá flugfélaginu og eða koma vel fram við þá viðskiptavini sem aðeins vilja flug, ákveður ferðaskrifstofan í fyrsta lagi að selja aðeins flug fram og aftur í einum pakka og til að bæta gráu ofan á svart verðsetja flugið fram og aftur per mann á litlar hundrað þúsund krónur.

Þetta er alveg banalt hjá ferðaskrifstofu. Ástæða þessa liggur í augum uppi: Heimsferðir vilja selja pakkaferðir, flug plús hótel, og til að örva þá sölu eru flugsæti verðlögð á pari við gull og gersemar.

Gallinn hins vegar sá að sífellt fleiri þarna úti hafa áttað sig á að pakkatilboð ferðaskrifstofanna hérlendis eru í okurflokki oft á tíðum og vita að með því að skipuleggja eigin ferðir má vel spara þetta 20% til 60% á Kanaríferð. Það er peningur sem flesta munar um.

Slíkar þvinganir kunna ekki góðri lukku að stýra og nægir að gúggla Microsoft til að kveikja á þeirri peru. Góðu heilli hefur Wow Air þó hent í loftið nokkrum flugferðum til Kanarí yfir jólavertíðina og þangað komist gróflega fyrir 50 til 60 þúsund báðar leiðir. Eða hitt að fljúga með Wow Air til Tenerife sem kostar rúmlega 40 þúsund á mann yfir vetrartímann og fljúga þaðan yfir til Kanarí með heimaflugfélaginu Binter en sá túr kostar oft undir tíu þúsund krónum fram og aftur með góðum fyrirvara.