Svo gæti farið að innan tíu ára verði annaðhvort Madríd eða Barcelóna á Spáni orðnar þekktar sem Las Vegas Evrópu. Allavega ef bandarískur billjarðamæringur fær sínu framgengt en sá telur verulegan skort á alvöru spilavítum í álfunni og vill bæta þar úr sem fyrst.

Eignast Barcelóna sitt eigið Strip þar sem hvert spilavítið rís upp af öðru?

Eignast Barcelóna sitt eigið Strip þar sem hvert spilavítið rís upp af öðru?

Hugmyndir Sheldon Adelson ganga út á að reisa fjölda spilavíta, afþreyingarstaða, golfvalla, veitingastaða og verslunarmiðstöðva á einum og sama blettinum annaðhvort í Madríd eða Barcelóna á Spáni og það á innan við tíu árum. Og skítblönk spænsk stjórnvöld geta vart annað en brosað við slíkum hugmyndum þó seint fari fyrirmyndin Vegas í bækur sem yndislegur staður til að búa á.

Adelson þessi á fjölda spilavíta og hótela bæði í Vegas og ekki síður í Macau og Singapore og öll ganga þau framar vonum. Hann telur mikið sóknarfæri í Evrópu sem státar af fjölda spilavíta í borgum víða en hvergi er að finna neitt á borð við Vegas hvers miðborg samanstendur ekki af öðru en spilavítum og þjónustu tengdum þeim.

Berjast því borgaryfirvöld í báðum borgum nú um hylli Adelson sem hyggst innan tíðar taka ákvörðun um staðsetningu sex spilavíta, tólf hótela, ráðstefnuhúsa, þriggja golfvalla, verslunarmiðstöðvar og fjölda bara og veitingastaða.

Telja fróðir að til þurfi 120 þúsund manns við uppbyggingu slíks svæðis og það heillar yfirvöld í landi þar sem atvinnuleysi er vel yfir 20 prósent.

Sagan sýnir líka glögglega, sama hvað fólki finnst, að spilavíti heilla milljónir manna alls staðar og segir sína sögu að hvorki Vegas né stórir spilavítisstaðir í Asíu fundu neitt fyrir þeirri efnahagslægð sem reið yfir heiminn 2008. Þvert á móti hafa gistinætur í Vegas aldrei verið fleiri en í kjölfar þess.