Þó enn sé fyrsta áætlunarflug Wow Air enn ekki hafið má ráða af orðum stjórnarformanns félagsins að það sé ekki spurning um hvort félagið fjölgi áfangastöðum sínum heldur hvert og það strax á næsta ári.

Fyrsta flug ekki farið í loftið hjá Wow en engin spurning er um fjölgun áfangastaða strax á næsta ári
Þó flugfélögin Wow Air, Icelandair og Iceland Express gefi engar tölur upp um hvernig sala ferða gangi nú þegar líða fer að helsta ferðamannatíma bæði Íslendinga og eins útlendinga sem heimsækja vilja Ísland virðist mikil bjartsýni ríkja meðal þeirra allra.
Í samtali við fréttamann Bloomberg fréttastofunnar segir Skúli Mogensen, stjórnarformaður Wow, að félagið byrji íhaldssamt með sínum þrettán flugleiðum í sumar en er óhræddur við að lýsa yfir að flugfélagið ætli að bæta við nýjum áfangastöðum strax á næsta ári.
Það eru töluvert stór orð hjá eiganda flugfélags sem enn hefur ekki hafið starfsemi en stemma við ummæli forstjóra Wow við Fararheill.is þess efnis að strax í byrjun mars hafi áætlanir Wow um farþegafjölda verið sprungnar.
Fjárfestar almennt virðast sama sinnis um framtíðina því gengi hlutabréfa Icelandair heldur áfram að hækka jafnt og þétt en innan tíðar hefst flug félagsins til Denver í Bandaríkjunum. Icelandair er nú með einokunaraðstöðu á flugi til Norður Ameríku meðal íslensku flugfélaganna eftir að Iceland Express hætti þangað öllu flugi síðasta haust.






