Samkeppnin er yndisleg. Á nákvæmlega sama andartaki og sértilboði Wow Air til London og Kaupmannahafnar lýkur nú í hádeginu hefst tilboðsveisla hjá Iceland Express.

Farið að bóla á alvöru samkeppni í fluginu. Iceland Express hefur aldrei áður boðið fimm áfangastaði sína á tilboði í einu
Lækkar Iceland Express verð til fimm áfangastaða sinna næstu tólf klukkustundirnar til miðnættis. Er þar um að ræða London, Kaupmannahöfn, Varsjá, Alicante og Berlín.
Mesta athygli vekur að tilboðsverð til Kaupmannahafnar og London er 40 krónum ódýrara en tilboð Wow Air sem í boði hafa verið síðustu tvo sólarhringa. Ólíkt tilboðum Wow þar sem fram kom að þau giltu um allar flugferðir júní, júlí og ágúst er hvergi að finna upplýsingar um hvort tilboð Iceland Express eru bundin við að fljúga ákveðna daga.
Þó kemur fram í tilkynningu að sætaúrval á þessu verði sé takmarkað. Sem þýðir að áhugasamir þurfa að gjöra svo vel og leita sjálfir og eyða til þess tíma.
Finnist þau geta ferðafúsir flogið aðra leiðina til London eða Kaupmannahafnar á 14.450 krónur. Til Berlínar er komist aðra leiðina fyrir 19.950 krónur og til Varsjár og Alicante fyrir 24.950 krónur.
Sérstaklega er tilboðið til Alicante spennandi sé um slíkar ferðir að ræða yfir annatíma í sumar. Venjulegt verð aðra leiðina til Alicante í júní eða júlí kostar um og yfir 40 þúsund krónur og því góður sparnaður þar.






