Full ástæða er fyrir alla sem ætla erlendis á næstu vikum að mæta tímanlegar en venjulega. Breytingar á farangurskerfi flugstöðvar Leifs Eiríkssonar eru að hefjast og mörgum innritunarborðum í flugstöðinni verður lokað á meðan.
Framkvæmdirnar hefjast mánudaginn 10. mars og standa linnulítið fram í maí og þann tíma fækkar innritunarborðum í Leifsstöð töluvert. Sem eðlilega þýðir að biðraðir við innritun lengjast til muna.
Ráð að notast við símainnritun flugfélaganna sé þess kostur en annars láta sig hafa hálftíma til í viðbót við þær tvær stundir sem venjulega er kappnógur tími til innritunar og öryggisskoðunar.








